Þrettán styrkir til að rannsaka og kynna innlenda orkugjafa og hagkvæma orkunotkun
Fréttatilkynning nr 7/2009
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra hefur staðfest tillögur Orkuráðs um styrki úr Orkusjóði til rannsókar- og kynningarverkefna fyrir árið 2008. Styrkirnir eru veittir verkefnum sem beinast að nýtingu innlendra orkugjafa og hagkvæmri orkunotkun.
Veittir eru 13 styrkir að upphæð 25,6 milljónir króna. Alls bárust 57 umsóknir um samtals 158,3 m.kr. og voru í þeim hópi ýmis áhugaverð og mikilsverð verkefni sem ekki var unnt að styrkja að þessu sinni.
Rannsóknar- og fræðslustyrkir þessir eru veittir árlega úr Orkusjóði samkvæmt 2. mgr. 8. gr. laga um Orkustofnun, Orkuráð og Orkusjóð (87/2003) til „sérstakra verkefna á sviði hagkvæmrar orkunotkunar, þ.m.t. til fræðslu og upplýsingastarfsemi“ og til „verkefna sem stuðla að nýtingu á innlendri orku í stað jarðefnaeldsneytis og styrkja alþjóðasamvinnu um slík verkefni“. Í auglýsingu var nú líkt og undnafarin ár lögð áhersla á verkefni sem snertu hagkvæma orkunýtingu og orkusparnað, innlenda orkugjafa, vistvænt eldsneyti og sparnað jarðefnaeldsneytis. Um hvern styrk er gerður samningur þar sem kveðið er á um verk- og kostnaðaráætlun, áfanga við greiðslu styrkfjárhæðarinnar, framvinduskýrslur og skilagögn. Miðað er við að styrkir úr Orkusjóði geti numið allt að helmingi kostnaðar við verkefnið sem styrkinn hlýtur eða þann hluta þess sem styrktur er.
Orkuráð starfar í tengslum við Orkustofnun og er meginhlutverk þess að sjá um rekstur Orkusjóðs, sem úr eru veitt áhættulán fyrir jarðhitaverkefnum og styrkir til rannsókna og fræðsluverkefna um endurnýjanlega orku, orkunýtingu og -sparnað. Iðnaðarráðherra skipar menn í ráðið og starfa þar nú Mörður Árnason, formaður, Bryndís Brandsdóttir, Drífa Hjartardóttir, Guðjón Guðmundsson og Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir.
Reykjavík, 16. júlí 2009