Hoppa yfir valmynd
30. júlí 2009 Forsætisráðuneytið

Frestun á samþykkt efnahagsáætlunar í samstarfi við AGS

Undanfarna mánuði hafa íslensk stjórnvöld unnið ötullega að fyrstu ársfjórðungslegu endurskoðun efnahagsáætlunar sinnar og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Mikilvæg skref hafa verið stigin á undanförnum vikum.

Meðal þeirra má nefna:

  • samþykkt ríkisstjórnar á áætlun í ríkisfjármálum til næstu ára,
  • samninga við skilanefndir gömlu bankanna,
  • áætlun um endurfjármögnun bankakerfisins,
  • undirritun samninga um lán frá Norðurlöndum, undirritun samninga vegna Icesave reikninga við Breta og Hollendinga með fyrirvara um samþykki Alþingis,
  • áætlun um mótun stefnu um gjaldeyrishöftin sem kynnt verður á morgun, 31. júlí.

Öðrum markmiðum sem lagt var upp með hefur einnig verið náð.

Með þessum framgangi við endurreisn efnahagslífs á Íslandi hafa íslensk stjórnvöld, samkvæmt upplýsingum sem borist hafa frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, uppfyllt skilyrði fyrir endurskoðun efnahagsáætlunarinnar.

Þrátt fyrir það hefur framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins ákveðið að taka ekki fyrir endurskoðun efnahagsáætlunarinnar áður en hún fer í tveggja vikna sumarleyfi þann 7. ágúst líkt og að var stefnt. Sjóðurinn hefur staðreynt að fjármögnun efnahagsáætlunarinnar með greiðslum frá utanaðkomandi aðilum, m.a. Norðurlöndunum, hafi ekki verið tryggð. Umsamin norræn lán eru mikilvægur hluti efnahagsáætlunarinnar og verður aðgengi að þeim að vera að fullu tryggt áður en framkvæmdastjórn Alþjóða gjaldeyrissjóðsins telur sig geta gengið frá endurskoðun efnahagsáætlunarinnar.

Íslensk stjórnvöld munu áfram fylgja eftir efnahagsáætluninni, í nánu samstarfi við sérfræðinga sjóðsins, sem og öðrum endurreisnarverkefnum af fullum krafti. Gjaldeyrisstaða Seðlabankans er góð og mun töf á lánafyrirgreiðslu ekki hafa þar áhrif. Vonast er til að stjórnin geti tekið málefni Íslands til endurskoðunar í lok ágúst eða í byrjun september og þá berist annar hluti 2,1 milljarða Bandaríkjadala láns sjóðsins og fyrsti fjórðungur 2,5 milljarða dala láns Norðurlandanna til styrkingar gjaldeyrisvaraforða Seðlabanka Íslands.

Forsætisráðherra og fjármálaráðherra munu veita frekari upplýsingar og svara spurningum í Stjórnarráðshúsinu klukkan 10:00 á morgun, 31. júlí.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta