Hoppa yfir valmynd
6. ágúst 2009 Innviðaráðuneytið

Starfshópur um nýjan veg um Dynjandisheiði

Samgönguráðherra hefur ákveðið að skipa starfshóp til að hefja undirbúning við nýjan veg um Dynjandisheiði. Hópurinn á að taka til starfa með haustinu.

Kristján L. Möller samgönguráðherra sagði við athöfn í tilefni af 50 ára afmæli vegarins um Dynjandisheiði á dögunum að hann hefði ákveðið að skipa starfshóp til að hefja undirbúning við verkið. Verkefni hópsins verður að fara yfir athuganir og hugmyndir sem þegar liggja fyrir og standa jafnframt fyrir nauðsynlegum viðbótarrannsóknum og úttektum til að unnt verði að leggja fram tillögur um gerð og legu vegarins. Yrði þar gert ráð fyrir varanlegu og heilsárs vegarsambandi.

Verkinu skal haga þannig að Vegagerðin geti lokið hönnun, mati á umhverfisáhrifum og öðrum nauðsynlegum undirbúningi nógu tímanlega til að unnt verði að hefja framkvæmdir í beinu framhaldi af gerð jarðganga milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar.

Vegagerðinni er falið að stýra verkefninu og tilnefna þrjá fulltrúa í hópinn og farið hefur verið fram á að Fjórðungssamband Vestfirðinga skipi tvo fulltrúa í starfshópinn.

 



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta