Undirritun fjárfestingarsamnings.
Í dag var undirritaður fjárfestingarsamningur á milli ríkisstjórnar Íslands og Century Aluminum Company og Norðuráls Helguvík ehf. vegna byggingar álvers í Helguvík. Samningurinn byggir á ákvæðum laga um heimild til samninga um álver í Helguvík. (lög 51/2009).
Með bréfi dags. 9. mars 2009 tilkynnti ríkisstjórnin samning þennan til Eftirlitsstofnunar EFTA. Í ákvörðun sinni hinn 23. júlí 2009 ákvað Eftirlitsstofnun EFTA að gera ekki athugasemdir við þá ríkisaðstoð sem áformuð eru af hálfu íslenskra stjórnvalda með samningnum.
Samningurinn verður birtur í B-deild stjórnartíðinda bæði á ensku og íslensku.
Reykjavík, 7. ágúst 2009