Hoppa yfir valmynd
10. ágúst 2009 Forsætisráðuneytið

Nýtt lögfræðiálit vegna Icesave samninganna

Í nýju áliti sem lögmennirnir Andri Árnason og Helga Melkorka Óttarsdóttir hafa unnið fyrir forsætisráðuneytið er fjallað um gildandi reglur hér á landi og í ljósi EES-réttar um úthlutun úr búi fjármálafyrirtækja og hvernig þær muni horfa við gagnvart þeim sem eiga forgangskröfur í bú Landsbanka Íslands hf. Álitsins var aflað vegna vafa sem risið hefur um hvort með Icesave-samningunum hafi hlutur Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta þegar kemur að skiptum verið rýrður umfram það sem íslenskar réttarreglur gera ráð fyrir til hagsbóta fyrir breska og hollenska aðila.

Í áliti lögmannanna kemur fram að forgangskröfur vegna innistæða, hvort sem þær hafa verið yfirteknar af Tryggingarsjóði innstæðueigenda og fjárfesta eða verið framseldar kröfuhafa, teljist jafnréttháar að því er varðar úthlutun úr búi fjármálafyrirtækja. Tryggingarsjóðurinn njóti því samkvæmt íslenskum gjaldþrotarétti ekki sérstaks forgangs (ofurforgangs) þegar kemur að úthlutun forgangskrafna. Með álitinu er því enn staðfest að ákvæði Icesave samninganna um jafnræði milli tryggingarsjóða Íslands, Bretlands og Hollands rýra ekki að neinu leyti rétt íslenska tryggingarsjóðsins þegar kemur að úthlutun úr búi Landsbankans. Þá kemur fram í álitinu að ef tryggingarsjóðnum hefði á hinn bóginn með lögum verið veittur sérstakur forgangur umfram aðra kröfuhafa sem ættu sambærilega kröfu, þ.e. kröfu vegna innstæðna, andstætt reglum kröfuréttar og gjaldþrotaréttar hvað kröfuröð og rétthæð krafna varðar, þá væri hætt við að slíkt fæli í sér brot á EES-samningnum.

Álit Andra Árnasonar og Helgu Melkorku Óttarsdóttur um réttarstöðu við úthlutun úr búi fjámálafyrirtækja



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta