Námsorlof framhaldsskólakennara og stjórnenda framhaldsskóla
Umsóknir um námsorlof á framhaldsskólastigi fyrir skólaárið 2010-2011 þurfa að berast menntamálaráðuneyti eigi síðar en 1. október næstkomandi. Um námsorlof geta sótt framhaldsskólakennarar og stjórnendur framhaldsskóla. Einnig geta skólameistarar sótt um námsorlof fyrir hönd kennara viðkomandi skóla.
- Vakin er sérstök athygli á að umsóknir um námsorlof skulu vera á rafrænu formi.
Sækja þarf um aðgang að umsóknavef ráðuneytisins, www.menntamalaraduneyti.is/rafraeneydublod/
Þar eru tvö eyðublöð; annað fyrir námsorlof kennara og stjórnendur framhaldsskóla og hitt fyrir umsókn skólameistara um námsorlof kennara í nafni skóla.