Auglýsing um úthlutun aflaheimilda til áframeldis á þorski á fiskveiðiárinu 2009/2010
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra auglýsir eftir umsóknum um úthlutun aflaheimilda til áframeldis á þorski, sbr. reglugerð nr. 736/2009, um úthlutun aflaheimilda í þorski vegna tilrauna við föngun fisks til áframeldis og framkvæmd þess.
Umsóknarfrestur er til þriðjudagsins 15. september 2009.
Umsóknum skal skila til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, Skúlagötu 4, 150 Reykjavík og einnig skal senda umsóknir með rafrænum hætti á netfangið [email protected]
Umsóknir skulu merktar sem ,,Þorskeldiskvóti“.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 1. september 2009.