Evrópskur tungumáladagur 26. september 2009
Menntamálaráðuneytið hvetur skóla, aðrar fræðslustofnanir og hagsmunaaðila til að vekja athygli á Evrópska tungumáladeginum 26. september 2009 og vekja áhuga á tungumálum og símenntun í tungumálum. Vakin er athygli á bæklingi með hugmyndum að verkefnum á tungumáladeginum sem nálgast má á vef ráðuneytisins. Slóðin er www.menntamalaraduneyti.is/raduneyti/althjodlegt-samstarf. Þar er einnig að finna frekari upplýsingar um tungumáladaginn. Jafnframt er bent á vef Evrópuráðsins vegna tungumáladagsins. Slóðin er www.coe.int/edl. Í ráðuneytinu má einnig nálgast íslenska útgáfu á veggspjaldi frá Evrópuráðinu.
Markmið Evrópska tungumáladagsins eru einkum eftirfarandi:
- Vekja athygli á mikilvægi tungumálakunnáttu og fjölbreytts tungumálanáms til að auka fjöltyngi og skilning á ólíkri menningu þjóða
- Stuðla að því að viðhalda fjölbreytileika tungumála og menningar í Evrópu
- Hvetja til símenntunar í tungumálanámi, bæði innan skólakerfisins og utan þess.
Auk þess vill menntamálaráðuneytið benda á Evrópumerki í tungumálum (European Label) og Evrópsku tungumálamöppuna, sjá upplýsingar á: www.menntamalaraduneyti.is/raduneyti/evropusamstarf/nr/343 og www.menntamalaraduneyti.is/nyrit/nr/3931.
Tengiliður við verkefnið í menntamálaráðuneytinu er Erna Árnadóttir, sími 545 9500, netfang: [email protected]
Þess er vænst að Evrópskur tungumáladagur 2009 hafi góð áhrif á tungumálanám og tungumálakennslu og verði einstaklingum hvatning til símenntunar á því sviði.