Hoppa yfir valmynd
7. september 2009 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Stefnumót um loftslagsmál og Kaupmannahafnarfundinn

Stefnumót
Á Stefnumóti

Umhverfisráðuneytið, Stofnun Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun, Norræna ráðherranefndin, utanríkisráðuneytið og Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands efna til opins fundar um alþjóðlegar samningaviðræður í aðdraganda Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem fram fer í Kaupmannahöfn í desember. Fundurinn fer fram í fundarsal Þjóðminjasafnsins fimmtudaginn 10. september 2009 kl. 12:00 til 13:30.

Richard B. Howarth, prófessor við Dartmouth College í New Hampshire í Bandaríkjunum og ritstjóri Ecological Economics, og Harald Dovland, varaformaður vinnuhóps Kýótó-bókunarinnar um framtíð tölulegra skuldbindinga undir bókuninni, flytja erindi. Richard B. Howarth nefnir erindi sitt Uncertainty, Ethics and the Economics of Climate Change og erindi Harald Dovlands heiti On a steep and bumpy road to Copenhagen. Status in the international climate change negotiations.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta