Auglýst eftir leiguhúsnæði undir fangelsi
Ríkiskaup hafa nú auglýst, fyrir hönd dóms- og kirkjumálaráðuneytisins, eftir húsnæði til leigu til tveggja ára undir fangelsi.Gerð er krafa um að húsnæðið sé utan þéttbýlis og fjarlægð frá Litla-Hrauni sé ekki meiri en svo að möguleikar séu á að samnýta þjónustu við fangelsið. Húsnæðið skal rýma 16-26 einstaklinga í einstaklings-og/eða tveggja manna herbergjum.
Frekari upplýsingar um þær kröfur sem húsnæðið verður að uppfylla verða aðgengilegar á heimasíðu Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is, þriðjudaginn 22. september 2009.
Sjá auglýsingu Ríkiskaupa: Húsnæði undir fangelsi óskast til leigu fyrir Fangelsismálastofnun.