Hoppa yfir valmynd
1. október 2009 Matvælaráðuneytið

Efnahags- og viðskiptaráðuneyti tekur til starfa

Í dag, 1. október 2009, tekur efnahags- og viðskiptaráðuneyti til starfa á grunni viðskiptaráðuneytisins, þegar lög um breytingar á lögum um Stjórnarráð Íslands taka gildi.

Í ráðuneytinu verður forræði efnahagsmála sem nú er bæði í forsætisráðuneyti og fjármálaráðuneyti. Í því fellst að málefni Seðlabanka Íslands verða nú í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu og heyra þá Fjármálaeftirlitið og Seðlabanki Íslands undir sama ráðuneyti. Starfsemi efnahagsskrifstofu forsætisráðuneytisins flyst í dag til efnahags- og viðskiptaráðuneytisins. Þá flyst í dag hluti af efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins til efnahags- og viðskiptaráðuneytisins, en í fjármálaráðuneytinu verða áfram verkefni sem unnin hafa verið á efnahagsskrifstofu ráðuneytisins og tengjast fjárlagagerð og stjórn ríkisfjármála, svo sem tekjuáætlun fjárlaga og mat á tekjuáhrifum skattabreytinga. Málefni Hagstofu Íslands flytjast frá forsætisráðuneytinu til efnahags- og viðskiptaráðuneytisins í dag og við Hagstofu Íslands verður sett á fót sjálfstæð rannsóknareining sem fylgist með afkomu þjóðarbúsins, semur þjóðhagsspár og birtir opinberlega. Sú eining verður til með flutningi verkefna frá fjármálaráðuneyti til Hagstofunnar. Með þessu fyrirkomulagi er undirstrikað mikilvægi þess að efnahagsspá á vegum stjórnvalda sé sjálfstæð og trúverðug.

Þá flytjast málefni er varða bókhald, endurskoðendur og ársreikninga til efnahags- og viðskiptaráðuneytisins í dag, en þau verkefni tengjast mjög félagarétti sem nú þegar er á forræði viðskiptaráðuneytisins. Þá eru færð frá ráðuneytinu til utanríkisráðuneytisins verkefni sem tengjast umsýslu alþjóðlegra viðskiptasamninga og til dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins ýmis lög er varða verkefni á vegum Neytendastofu og talsmanns neytenda.

Skipurit efnahags- og viðskiptaráðuneytis

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta