Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-ágúst 2009
Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu átta mánuði ársins 2009 liggur nú fyrir. Samkvæmt uppgjörinu er handbært fé frá rekstri neikvætt um tæpa 79 ma.kr., sem er 95 ma.kr. lakari útkoma heldur en á sama tímabili í fyrra. Tekjur reyndust 18 ma.kr. minni en í fyrra á meðan gjöldin jukust um 65 ma.kr.
Sjóðstreymi ríkissjóðs janúar-ágúst 2005-2009
Í milljónum króna |
|||||
2005 |
2006 |
2007 |
2008 |
2009 |
|
Innheimtar tekjur |
219 294 |
246 109 |
286 074 |
294 326 |
276 404 |
Greidd gjöld |
203 787 |
209 728 |
239 188 |
281 885 |
346 684 |
Tekjujöfnuður |
15 507 |
36 381 |
46 886 |
12 441 |
-70 280 |
Söluhagn. af hlutabr. og eignahl. |
- |
- |
1 505 |
- |
- |
Breyting viðskiptahreyfinga |
791 |
- 823 |
-3 046 |
4 191 |
-8 420 |
Handbært fé frá rekstri |
16 298 |
35 558 |
45 346 |
16 633 |
-78 700 |
Fjármunahreyfingar |
11 260 |
-2 339 |
-67 758 |
8 538 |
11 983 |
Hreinn lánsfjárjöfnuður |
27 558 |
33 219 |
-22 412 |
25 171 |
-66 717 |
Afborganir lána |
-33 363 |
-32 592 |
-36 443 |
-38 129 |
-72 740 |
Innanlands |
-14 015 |
-9 719 |
-22 243 |
-22 662 |
-72 740 |
Erlendis |
-19 348 |
-22 873 |
-14 199 |
-15 467 |
- |
Greiðslur til LSR og LH |
-2 600 |
-2 640 |
-2 640 |
-2 640 |
- |
Lánsfjárjöfnuður, brúttó |
-8 406 |
-2 013 |
-61 496 |
-15 598 |
-139 457 |
Lántökur |
15 832 |
25 247 |
57 515 |
147 531 |
169 889 |
Innanlands |
11 555 |
17 673 |
54 181 |
85 647 |
162 540 |
Erlendis |
4 277 |
7 574 |
3 334 |
61 884 |
7 348 |
Breyting á handbæru fé |
7 426 |
23 234 |
-3 981 |
131 933 |
30 432 |
Innheimtar tekjur ríkissjóðs á fyrstu átta mánuðum ársins voru rúmlega 276 ma.kr. sem er 18 ma.kr. minna en á sama tíma árið 2008. Áætlun fjárlaga gerði ráð fyrir að tekjur tímabilsins yrðu rúmlega 282 ma.kr. og er frávikið því neikvætt um 6 ma.kr. Innheimtan hefur verið minni en reiknað var með í áætlun fjárlaga allt frá ársbyrjun. Frávikið það sem af er ári er þó minna nú en áður þar sem innheimta ágústmánaðar var óvenjumikil eða 49,4 ma.kr. Tvær meginskýringar eru á því: Eindagi fjármagnstekjuskatts af staðgreiðsluskyldum fjármagnstekjum á fyrstu tveimur ársfjórðungum ársins var í byrjun ágúst, sbr. 5. gr. og bráðabirgðaákvæði III í lögum nr. 70/2009 frá sl. sumri ("bandorminum" um ráðstafanir í ríkisfjármálum). Með þessari ráðstöfun er skilum flýtt á skatttekjum til ríkissjóðs og greiðsluafkoman á þessu ári bætt. Hún leiðir jafnframt til þess að tölur um tekjur og skatta á tímabilinu janúar-ágúst 2009 eru ekki samanburðarhæfar við tölur fyrri ára nema leiðrétt sé fyrir áhrifum þessarar breytingar á fjármagnstekjuskattinn. Hin skýringin á mikilli innheimtu í ágústmánuði liggur í innheimtu virðisaukaskatts. Um þetta er nánar fjallað hér á eftir.
Tekjur ríkissjóðs janúar-ágúst 2007-2009
|
Milljónir króna |
|
Breyting frá fyrra ári, % |
||||
|
2007 |
2008 |
2009 |
|
2007 |
2008 |
2009 |
Skatttekjur og tryggingagjöld |
258 929 |
267 640 |
243 826 |
|
12,3 |
3,4 |
-8,9 |
Skattar á tekjur og hagnað |
93 551 |
102 909 |
101 884 |
|
18,5 |
10,0 |
-1,0 |
Tekjuskattur einstaklinga |
53 787 |
57 129 |
53 307 |
|
11,7 |
6,2 |
-6,7 |
Tekjuskattur lögaðila |
16 533 |
17 636 |
10 584 |
|
5,0 |
6,7 |
-40,0 |
Skattur á fjármagnstekjur |
23 231 |
28 144 |
37 992 |
|
54,0 |
21,1 |
35,0 |
Eignarskattar |
7 336 |
5 526 |
3 147 |
|
15,4 |
-24,7 |
-43,0 |
Skattar á vöru og þjónustu |
126 407 |
124 872 |
106 240 |
|
8,1 |
-1,2 |
-14,9 |
Virðisaukaskattur |
88 509 |
87 108 |
72 579 |
|
9,7 |
-1,6 |
-16,7 |
Vörugjöld af ökutækjum |
6 986 |
6 352 |
1 355 |
|
-8,0 |
-9,1 |
-78,7 |
Vörugjöld af bensíni |
6 103 |
5 921 |
6 943 |
|
2,3 |
-3,0 |
17,3 |
Skattar á olíu |
4 826 |
4 929 |
4 560 |
|
11,2 |
2,1 |
-7,5 |
Áfengisgjald og tóbaksgjald |
7 860 |
8 002 |
9 133 |
|
4,8 |
1,8 |
14,1 |
Aðrir skattar á vöru og þjónustu |
12 123 |
12 558 |
11 671 |
|
11,5 |
3,6 |
-7,1 |
Tollar og aðflutningsgjöld |
3 405 |
3 978 |
3 087 |
|
33,7 |
16,8 |
-22,4 |
Aðrir skattar |
2 305 |
2 877 |
3 977 |
|
68,5 |
24,8 |
38,2 |
Tryggingagjöld |
25 924 |
27 479 |
25 491 |
|
6,6 |
6,0 |
-7,2 |
Fjárframlög |
702 |
207 |
359 |
|
-4,6 |
-70,5 |
73,5 |
Aðrar tekjur |
19 570 |
24 196 |
31 778 |
|
36,4 |
23,6 |
31,3 |
Sala eigna |
6 873 |
2 283 |
441 |
|
- |
- |
- |
Tekjur alls |
286 074 |
294 326 |
276 404 |
|
16,2 |
2,9 |
-6,1 |
Skatttekjur og tryggingagjöld námu tæplega 244 ma.kr. sem er 8,9% samdráttur að nafnvirði eða 22,6% að raunvirði miðað við hækkun almenns verðlags (VNV án húsnæðis). Skattar á tekjur og hagnað námu tæpum 102 ma.kr. og drógust saman um 1,0% að nafnvirði samanborið við fyrstu átta mánuði ársins 2008.
Innheimtur fjármagnstekjuskattur í mánuðinum var 9,3 ma.kr. og eru 8,2 ma. þar af skattur á fjármagnstekjur á fyrri helmingi ársins, sem nú var skilað í ríkissjóð í fyrsta sinn eftir nýjum reglum um ársfjórðungslega gjalddaga. Hvert gjaldtímabil er einn ársfjórðungur héðan í frá, en fyrsta gjaldtímabilið sem hinar nýju reglur giltu um var þó fyrstu tveir ársfjórðungar ársins. Tekjuskattur einstaklinga nam 6,9 ma.kr. í mánuðinum. Þar af voru 220 milljónir króna 8% viðbótarskattur á mánaðartekjur yfir 700 þús.kr. sem gildi tók 1. júlí sl. Tekjuskattur lögaðila var 1,4 ma.kr. í ágúst og tæplega 11 ma.kr. alls frá ársbyrjun. Eignarskattar námu aðeins 273 m.kr. í ágúst og 3,1 ma.kr. alls frá ársbyrjun.
Innheimta skatta á vöru og þjónustu nam rúmlega 106 ma.kr. á tímabilinu og dróst saman um 14,9% að nafnvirði á milli ára eða 27,7% að raunvirði (m.v. hækkun VNV án húsnæðis). Þegar litið er á 4 mánaða meðaltal er raunlækkunin á milli ára 23,6%, eins og sjá má á myndinni á næstu síðu. Myndin sýnir einnig þróun skatttekna í heild og þarf að gæta vel að því að gögnin sýna innheimtu en ekki álagningu skatta, og að sú sérstaka aðgerð að fjölga gjalddögum skila á fjármagnstekjuskatti til ríkissjóðs leiddi til þess að 8,2 ma.kr. tekjur komu í ríkissjóð í ágúst sem hefðu annars ekki komið fyrr en í janúar 2010. Myndin sýnir að mesti samdrátturinn miðað við fyrra ár virðist vera að baki þótt allir helstu skattstofnar séu enn að dragast saman að raunvirði.
Virðisaukaskattur, sem er stærsti hluti veltuskattanna, nam 16,1 ma.kr. í ágúst sem er hið langmesta í einum mánuði frá ársbyrjun. Frá upphafi ársins hefur virðisaukaskattur alls skilað tæplega 73 ma.kr. í ríkissjóð og hefur hann dregist saman um 14 ma.kr. frá sama tíma 2008. Samdrátturinn nemur 16,7% að nafnvirði eða sem samsvarar 29,2% að raunvirði. Á þessu ári hefur mestur hluti innheimts virðisaukaskatts verið af sölu vöru og þjónustu innanlands en mun minna af innflutningi en í fyrra. Tveggja mánaða sveiflan í innheimtunni hefur því verið þannig í ár að í febrúar, apríl, júní og ágúst hefur innheimtan verið talsvert meiri en í hinum mánuðum. Að hluta til eru sérstakar skýringar á mikilli innheimtu ágústmánaðar. Hún kemur að mestu af smásölu á þriðja virðisaukaskattstímabili ársins, þ.e. maí og júní, og var tæpum 9 ma.kr. meiri en í ágúst í fyrra. Þar af má reikna með að milli 3 og 4 ma.kr. séu tilfærsla frá júlímánuði vegna þeirrar heimildar sem veitt hefur verið til að dreifa greiðslu virðisaukaskatts af innflutningi yfir þrjá mánuði. Í júlímánuði var því aðeins þriðjungur virðisaukaskatts 3. gjaldtímabilsins á gjalddaga en hinir tveir þriðjungarnir í ágúst og september. Þá hefur það einhver áhrif á innheimtu ágústmánaðar að átak var gert í að selja nýja bíla á tilboðum snemma í sumar, og gæti virðisaukaskattur þar af hafa numið a.m.k. hálfum milljarði króna. Árstíðarbundin sveifla tengd neyslu ferðamanna er óvenjusterk í ár vegna mikils fjölda erlendra ferðamanna og meiri ferðalaga Íslendinga innanlands en undanfarin sumur. Loks má nefna að þróun væntinga neytenda á þessum tíma (maí-júní) um gengi krónunnar til skamms tíma, á þá leið að lengra yrði að bíða gengisstyrkingar og lækkunar innflutningsverðs, kann að skýra aukningu neyslu miðað við mánuðina á undan að einhverju leyti. Sjá má þróun virðisaukaskatts á næstu mynd. Hinn skrykkjótti ferill síðustu mánuðina sýnir umskiptin sem hafa orðið milli ára hvað varðar skiptingu skattstofnsins í innflutning annars vegar og veltu innanlands hins vegar, og ólíka þróun hvors um sig.
Hvað aðra helstu liði veltutengdra skatta varðar er samdrátturinn milli ára mestur í vörugjöldum af ökutækjum eða 78,7%. Þá jukust vörugjöld af bensíni um 17,3% að nafnvirði á milli ára en olíugjald dróst saman um 7,5%. Gjöld á bensín og olíu voru hækkuð um 12,5% undir lok árs 2008 og hækkuð frekar í lok maí 2009. Samdráttur tekna af olíugjaldinu þrátt fyrir hækkun gjaldsins er til marks um hve mjög hefur dregið úr akstri olíuknúinna ökutækja miðað við sama tímabil 2008. Í forsendum fjárlaga var reiknað með að olíunotkun drægist meira saman en bensínnotkun en samdráttur þeirrar fyrrnefndu hefur þó verið talsvert meiri en búist var við. Tekjur af tollum og aðflutningsgjöldum námu rúmum 3 ma.kr. og tekjur af tryggingagjöldum voru rúmlega 25 ma.kr. sem er samdráttur um annars vegar 22,4% og hins vegar 7,2% á milli ára. Tryggingagjald var hækkað úr 5,34% í 7,00% þann 1. júlí sl. og koma jákvæð áhrif þess á tekjur ríkissjóðs í fyrsta sinn fram í innheimtutölum ágústmánaðar.
Aðrar rekstrartekjur ríkissjóðs jukust umtalsvert miðað við janúar-ágúst árið 2008 en þær voru tæplega 32 ma.kr. sem endurspeglar 31,3% hækkun að nafnvirði. Í áætlun fjárlaga var gert ráð fyrir rúmum 22 ma.kr. og skýrist 10 ma.kr. frávikið af verulega breyttum forsendum vaxtatekjuáætlunar ársins.
Greidd gjöld nema 346,7 ma.kr. og hækka um 64,8 ma.kr. frá fyrra ári, eða 23%. Milli ára hækka vaxtagjöld ríkissjóðs mest eða 22,7 ma.kr. Þá hækkuðu útgjöld til almannatrygginga og velferðarmála um 20 ma.kr. sem skýrist að mestu með 15,5 ma.kr. hækkun útgjalda Atvinnuleysistryggingasjóðs á milli ára, 3,3 ma.kr. hækkun á vaxtabótum og 1,1 ma.kr. hækkun á barnabótum. Útgjöld til heilbrigðismála aukast um 7,5 ma.kr. milli ára þar sem útgjöld til Sjúkratrygginga skýra 6,3 ma.kr. Útgjöld til menntamála aukast um 2,9 ma.kr. þar sem útgjöld til Lánasjóðs íslenskra námsmanna aukast um 1,1 ma.kr. milli ára og útgjöld til framhaldsskóla um 1,8 ma.kr. Útgjöld til efnahags- og atvinnumála aukast um 2,7 ma.kr. og skýra framkvæmdir Vegagerðarinnar um 0,6 ma.kr. og Hafnarbótasjóður 1,0 ma.kr. Þá aukast útgjöld til Ábyrgðasjóðs launa um 646 milljónir króna á milli ára. Óregluleg útgjöld aukast um 2,2 ma.kr. milli ára sem skýrist með að mestu með fjármagnstekjuskatti greiddum af ríkissjóði sem eykst um 2,3 ma.kr. milli ára. Útgjöld til löggæslu, réttargæslu og öryggismála aukast um 2,0 ma.kr. milli ára þar sem fjárfesting Landhelgissjóðs í varðskipi og flugvél skýra aukninguna að langstærstu leyti. Breytingar í öðrum málaflokkum eru minni en þau sem áður hafa verið talin.
Lánsfjárjöfnuður ríkissjóðs er neikvæður um 139 ma.kr. í ágúst á móti neikvæðum lánsfjárjöfnuði um 15,6 ma.kr. á sama tíma í fyrra. Hreinn lánsfjárjöfnuður var neikvæður um 66,7 ma.kr. og lækkar um 91,9 ma.kr. milli ára sem skýrist með lækkun á handbæru fé frá rekstri. Frá áramótum hefur ríkissjóður selt ríkisbréf fyrir um 154 ma.kr. og ríkisvíxla fyrir um 8,5 ma.kr. Þá tók ríkissjóður lán frá Færeyjum í mars að fjárhæð 300 milljónir danskra króna, jafnvirði 6,4 ma.kr. íslenskra króna. Afborganir námu 72,7 ma.kr. og er þar að stærstum hluta um að ræða innlausn ríkisbréfaflokka á gjalddaga í júní að fjárhæð 70,7 ma.kr.
Gjöld ríkissjóðs janúar-ágúst 2007-2009
|
Milljónir króna |
|
Breyting frá fyrra ári, % |
|||
|
2007 |
2008 |
2009 |
|
2008 |
2009 |
Almenn opinber þjónusta |
32 538 |
39 138 |
65 040 |
|
20,3 |
66,2 |
Þar af vaxtagreiðslur |
10 653 |
12 318 |
34 495 |
|
15,6 |
180,0 |
Varnarmál |
412 |
754 |
1 071 |
|
83,0 |
42,0 |
Löggæsla, réttargæsla og öryggismál |
10 566 |
13 135 |
15 128 |
|
24,3 |
15,2 |
Efnahags- og atvinnumál |
30 640 |
40 074 |
42 735 |
|
30,8 |
6,6 |
Umhverfisvernd |
2 559 |
2 935 |
2 860 |
|
14,7 |
-2,6 |
Húsnæðis- skipulags- og veitumál |
289 |
357 |
422 |
|
23,5 |
18,2 |
Heilbrigðismál |
61 123 |
68 188 |
75 711 |
|
11,6 |
11,0 |
Menningar- íþrótta- og trúmál |
10 550 |
11 381 |
12 628 |
|
7,9 |
11,0 |
Menntamál |
26 238 |
28 965 |
31 892 |
|
10,4 |
10,1 |
Almannatryggingar og velferðarmál |
58 443 |
71 156 |
91 188 |
|
21,8 |
28,2 |
Óregluleg útgjöld |
5 829 |
5 801 |
8 009 |
|
-0,5 |
38,1 |
Gjöld alls |
239 188 |
281 885 |
346 684 |
|
17,9 |
23,0 |