Mennta- og menningarmálaráðuneyti
Í samræmi við lög nr. 98/2009 breyttist heiti menntamálaráðuneytis í mennta- og menningarmálaráðuneyti, 1. október 2009.
Nokkur verkefni sem hafa verið á forræði forsætisráðuneytisins flytjast yfir í mennta- og menningarmálaráðuneytið. Má þar nefna:
- Þjóðmenningarhús,
- Minningarsafn Halldórs Laxnes á Gljúfrasteini,
- Stafkirkjuna á Heimaey,
- Þjóðveldisbæinn í Þjórsárdal,
- Sjóð þjóðhátíðargjafar Norðmanna og
- Grænlandssjóð.
Jafnframt mun ráðuneytið hafa umsjón með lögum um prentrétt sem áður var á forræði dómsmálaráðuneytis.