Hoppa yfir valmynd
4. október 2009 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Sameiginleg fréttatilkynning frá fjármálaráðuneyti Póllands og fjármálaráðuneyti Íslands

Fréttatilkynning nr. 68/2009

Í dag var undirritaður í Istanbul í Tyrklandi lánssamningur milli Póllands og Íslands. Samkvæmt samningnum lánar pólska ríkið íslenska ríkinu 630 milljónir pólskra slota (zloty, PLN) sem er jafnvirði u.þ.b. 200 milljóna Bandaríkjadala.

Undir samninginn skrifuðu Jan Vincent-Rostowski, fjármálaráðherra, fyrir hönd Póllands og Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, fyrir hönd Íslands.

Lánið frá Póllandi er viðbót við lán Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) til Íslands, sem nemur 2,1 milljarði Bandaríkjadala, og er veitt til stuðnings við efnahagsáætlun íslenskra stjórnvalda sem stofnað var til í samstarfi við AGS í þeim tilgangi að koma á jafnvægi í íslenskum efnahagsmálum eftir fjármálakreppuna sem skall yfir haustið 2008. Lánsféð mun efla lausafjárstöðu Íslendinga í erlendum gjaldeyri. Lánveitingin felur í þátttöku Póllands í viðleitni alþjóðasamfélagsins til þess að sigrast á alþjóðafjármálakreppunni.

Lánið sem er til 12 ára, með fimm ára afborgunarlausum tíma, leggur Íslandi til fjármögnun til langs tíma og sýnir um leið samstöðu Pólverja með Íslendingum og staðfastan stuðning þeirra við Ísland í þeim erfiðleikum í efnahags- og fjármálum sem nú er við að glíma.

Lánið verður borgað út í þremur jöfnum hlutagreiðslum sem eru tengdar annarri, þriðju og fjórðu endurskoðun á efnahagsáætlun Íslands með AGS, og er hver greiðsla háð því að viðkomandi endurskoðun hafi verið samþykkt. Lánið verður veitt og borgað út í pólskum slotum (PLN). Samhliða útborgun lánsfjárins mun pólska fjármálaráðuneytið gefa út pólsk ríkisskuldabréf í fjórum tilgreindum skuldabréfaflokkum í sömu fjárhæð og útborgun lánsins nemur hverju sinni. Lántakandi skuldbindur sig samkvæmt lánssamningnum til þess að verja útborguðu lánsfé til kaupa á hinum tilgreindu pólsku ríkisskuldabréfum. Greiðsluferlarnir samkvæmt lánssamningnum munu samsvara vaxtagreiðslu- og endurgreiðsluferlum hinna tilgreindu pólsku ríkiskuldabréfa. Hreinn kostnaður lántakanda mun þar af leiðandi eingöngu verða vaxtaálag sem greiða skal samtímis vaxtagreiðslum af pólsku ríkisskuldabréfunum. Vaxtaálagið verður 2% á ári fram til 31. desember 2015 en 1.3% á ári þar eftir. Lánið verður endurgreitt með fjórum afborgunum á lokagjalddögum hinna tilgreindu pólsku ríkisskuldabréfa í október 2015, 2017 og 2019 og í september 2022.

Pólsku ríkisskuldabréfin sem íslenska ríkið eignast samkvæmt lánssamningnum munu styðja við gjaldeyrisforða Íslands. Þar sem lánsféð verður varðveitt í völdum pólskum ríkisskuldabréfum í pólskum slotum (PLN) með endurgreiðslu- og vaxtagreiðsluferlum sem samsvara greiðsluferlum lánssamningsins er bæði vaxtaáhættu og gjaldmiðlaáhættu þar með eytt.

Fjármálaráðuneytinu, 4. október 2009



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta