Hoppa yfir valmynd
19. október 2009 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Fjármálaráðherrar Íslands, Bretlands og Hollands: Sameiginleg yfirlýsing við framlagningu frumvarps um Icesave á Alþingi

Fréttatilkynning nr. 71/2009

Í kjölfar undirritunar samnings um samþykki og breytingar milli Íslands og Bretlands annars vegar og Íslands og Hollands hins vegar var frumvarp lagt fram á Alþingi í dag. Þessir samningar um breytingar og frumvarpið eru lokaáfangar í framkvæmd Icesave-lánafyrirkomulagsins milli Íslands, Bretlands og Hollands.

Með lánasamningunum, eins og þeim hefur verið breytt, hafa Bretland og Holland samþykkt m.a. þau efnahagslegu skilyrði sem sett eru fram í lögum nr. 96/2009, sem samþykkt voru á Alþingi 28. ágúst 2009. Í nýja frumvarpinu áréttar Ísland bindandi ábyrgð sína gagnvart þeim skuldbindingum Tryggingarsjóðs innstæðueigenda að greiða innstæðueigendum Icesave í Bretlandi og Hollandi tryggingu án þess að viðurkenna að fyrir hendi hafi verið lagaleg skuldbinding um að veita þann stuðning. Í frumvarpinu er fjármálaráðherra einnig falið að fylgjast með efnahagsstöðu Íslands og tilhögun lánasamninganna vegna Icesave með það í huga að tryggja snurðulausa framkvæmd þeirra og gera ráðstafanir vegna frekari viðræðna eftir því sem nauðsyn krefur.

Aðilarnir eru einhuga um að vinna saman á næstu mánuðum og árum, en í því felst meðal annars að ræða að beiðni einhvers aðilanna um álitaefni sem upp kunna að koma og bregðast við þeim eftir atvikum. Aðilarnir munu starfa saman að því að veita aðstoð við endurheimt þeirra eigna Landsbankans sem um ræðir.

Fjármálaráðherrar Íslands, Bretlands og Hollands viðurkenna að sá agi sem beita þarf í fjárlögum Íslands í kjölfar samþykktar Íslands á lánafyrirkomulagi vegna Icesave verður íslensku þjóðinni ekki auðveldur. Þeir lýsa yfir stuðningi við árangursríka endurskoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í samræmi við þær ákvarðanir sem voru teknar í nóvember síðastliðnum á grundvelli viljayfirlýsingar Íslands. Þeir líta svo á að lausn Icesave-málsins, ásamt fjárhagslegum stuðningi frá öðrum löndum Evrópu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, séu mikilvægt skref í þá átt að bæta verulega stöðu Íslands á alþjóðlegum fjármálamörkuðum og aðgengi að þeim.

Fjármálaráðuneytinu, 19. október 2009



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta