Málþing - Ungt fólk 2009
fimmtudaginn 22. október 2009 kl. 13:15 til 16:00
Mennta- og menningarmálaráðuneytið í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga Háskólann í Reykjavík og Rannsóknir og greiningu, boða til málþings um niðurstöður úr æskulýðsrannsókninni Ungt fólk 2009 grunnskólar. Kynntar verða niðurstöður er varða menntun, menningu, tómstundaiðkun og framtíðarsýn nemenda á mið- og unglingastigi í grunnskólum landsins.
Málþingið verður haldið í félagsheimili KFUM og KFUK við Holtaveg 28, Reykjavík og hefst kl. 13:15. Gert er ráð fyrir að málþinginu ljúki eigi síðar en kl. 16:00. Boðið verður upp á kaffi.
Dagskrá |
---|
|
|
|
|
- Skýrslan Ungt fólk 2009 : 8., 9. og 10. bekkur : menntun, menning, tómstundir, íþróttaiðkun og framtíðarsýn ungmenna á Íslandi (PDF)
- Ungt fólk 2009 : 5., 6. og 7. bekkur : hagir og líðan barna á Íslandi, íþrótta- og tómstundaiðja, nám og skóli, samband við fjölskyldu og vini, lestur, miðlar og tækjaeign (PDF)
Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur staðið fyrir reglubundnum æskulýðsrannsóknum síðan árið 1992 undir heitinu Ungt fólk. Háskólinn í Reykjavík og Rannsóknir og greining eru samstarfsaðilar ráðuneytisins að þessum rannsóknum. Þátttakendum gefst tækifæri til að bera fram spurningar um niðurstöður úr rannsókninni að kynningu lokinni.
- Fundurinn er öllum opinn
- Vinsamlega tilkynnið þátttöku á netfangið: [email protected]