Hoppa yfir valmynd
23. október 2009 Matvælaráðuneytið

Áritun draga að fjárfestingarsamningi við Verne Holding ehf. um gagnaver í Reykjanesbæ

Fréttatilkynning nr 13/2009
Í dag voru í iðnaðarráðuneytinu árituð drög að fjárfestingarsamningi við Verne Holding ehf. um byggingu og rekstur gagnavers í Reykjanesbæ. Samningurinn kveður á um tímabundnar ívilnanir vegna fjárfestingarinnar hér á landi. Byggt var á fyrirmyndum í þeim fjárfestingarsamningum sem gerðir hafa verið vegna stóriðju á undanförnum árum.

Á næstunni mun iðnaðarráðherra leggja fyrir ríkisstjórn frumvarp til laga um heimild til samninga um gagnaver í Reykjanesbæ. Í frumvarpinu er  iðnaðarráðherra veitt heimild til að gera fjárfestingarsamning fyrir hönd ríkisstjórnarinnar við Verne Holding ehf. um byggingu og rekstur gagnaversins svo staðfesta megi samninginn.


Reykjavík, 23. október 2009

Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta