Hoppa yfir valmynd
25. október 2009 Matvælaráðuneytið

Alþjóðleg ráðstefna Norðurslóðaáætlunar 10. - 11. nóvember

Alþjóðleg ráðstefna Norðurslóðaáætlunar LAVA 09 verður haldin í Iðnó, Reykjavík dagana 10.-11. nóvember 2009.

Þema ráðstefnunnar er atvinnusköpun með áherslu á sóknarfæri sem felast í tengingu hefðbundinna atvinnugreina við skapandi greinar. Í tengslum við ráðstefnuna verður kynning á fjölbreyttum verkefnum sem Ísland tekur þátt í innan Norðurslóðaáætlunar 2007-2013 í Ráðhúsi Reykjavíkur.

Lögð er áhersla á virkt samstarf og tækifæri sem liggja í samstarfi hefðbundinna atvinnugreina og skapandi iðnaðar. Hvernig getur aðkoma skapandi greina aukið framþróun og virði fyrirtækja og stofnanna.

Þátttakendur verða yfir 100 og koma frá öllum 9 þátttökulöndum Norðurslóðaáætlunar þ.e. Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Færeyjum, Grænlandi, Írlandi, Skotlandi, Norður Írlandi auk Íslands.

Nánari upplýsingar og skráning þátttöku er á heimasíðu ráðstefnunnar LAVA 09



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta