Ráðgjafahópur um leiðir til að bæta raforkuöryggi á Vestfjörðum
Fréttatillkynning nr 14/2009
Iðnaðarráðherra hefur skipað ráðgjafahóp til að fara yfir fyrirliggjandi tillögur fyrirliggjandi tillögur Landsnets um leiðir til að bæta raforkuöryggi á Vestfjörðum. Hópnum er jafnframt falið að leggja mat á það til hvaða aðgerða þurfi að grípa til að bæta samkeppnisstöðu Vestfjarða m.t.t til möguleika svæðið til atvinnuuppbyggingar í orkufrekum iðnaði. Guðni A. Jóhannesson orkumálastjóri leiðir hópinn en auk hans eiga þar sæti þau Matthildur Helgadóttir framkvæmdastjóri Snerpu á Ísafirði og Þorgeir Pálsson, framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða. Hópnum er falið að skila ráðherra greinargerð fyrir lok ársins en honum ber í störfum sínum að hafa samráð við sveitarfélög á Vestfjörðum.
Reykjavík, 26. október 2009