Nr. 37/2009 - Kynning á áformuðum breytingum á reglugerð um vigtun og skráningu sjávarafla er varða útflutning á óvigtuðum afla íslenskra skipa og framkvæmd úrtaksvigtunar við endurvigtun sjávarafla
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið kynnir drög að nýrri reglugerð um vigtun og skráningu sjávarafla. Þær áformuðu breytingar sem stefnt er að og nú eru kynntar eru tvíþættar. Annars vegar er heimild til vigtunar á afla íslenskra skipa á markaði erlendis felld niður. Hins vegar er reglum um úrtaksvigtun afla breytt þannig að gert er ráð fyrir að endurvigtunarleyfishafar geti framvegis valið á milli tveggja mismunandi leiða við úrtaksvigtun. Vigtunarleyfishafar mega þá velja hvort þeir framkvæmi úrtaksvigtun á sama hátt og verið hefur um árabil eða hvort þeir velji nýja leið sem felur í sér verulega fækkun á fjölda kara sem tekin eru í úrtak, enda hafi hvert kar verið brúttóvigtað af vigtunarleyfishafa.
Í ljósi þess að nú eru fyrirhugaðar breytingar á reglum um vigtun og þess að þegar hafa verið gerðar nokkrar breytingar á reglugerð nr. 224/2006, um vigtun og skráningu sjávarafla þykir heppilegt að gefa reglugerðina út á ný. Samhliða þessu mun auglýsing um lágmarksúrtak við úrtaksvigtun verða gefin út að nýju.
Stefnt er að því að nýjar reglur taki gildi 1. febrúar 2010 og vill ráðuneytið gefa aðilum kost á að koma með ábendingar og athugasemdir við drög þessi. Þess er óskað að þær berist ráðuneytinu eigi síðar en 12. nóvember n.k.
Hér má sjá:
Drög að reglugerð um vigtun og skráningu sjávarafla,
drög að reglugerð um vigtun og skráningu sjávarafla með breytingum,
drög auglýsingu um lágmarksúrtak við úrtaksvigtun.