Hoppa yfir valmynd
28. október 2009 Dómsmálaráðuneytið

Nýtt frumvarp um frestun nauðungarsölu fram yfir 31. janúar 2010

Ragna Árnadóttir, dómsmála- og mannréttindaráðherra, hefur mælt fyrir frumvarpi til breytinga á lögum um nauðungarsölu nr. 90/1991. Í frumvarpinu er lagt til að nauðungarsölum á íbúðarhúsnæði verði frestað fram yfir 31. janúar 2010, þannig að ákvörðun um lokasölu verði ekki tekin fyrr en eftir það tímamark.

Tilgangurinn með frestinum er að gefa skuldurum kost á að nýta sér þau úrræði sem í boði eru til að koma fjármálum sínum á réttan kjöl, t.d. með samningum við kröfuhafa eða greiðsluaðlögun. Þannig gefst einstaklingum frekara ráðrúm til að endurskipuleggja fjárhag sinn í ljósi nýrra heimilda sem lögfestar voru á Alþingi hinn 23. október sl., um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins.

Frumvarp dómsmála- og mannréttindaráðherra er nú til meðferðar á Alþingi en ljóst er að það getur ekki orðið að lögum fyrir 31. október þegar eldri frestur rennur út. Unnt er að ákveða frestun á nauðungarsölu þegar lögin hafa tekið gildi en þangað til munu sýslumenn taka málin fyrir með venjubundnum hætti. Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir að unnt sé að fresta lokasölu á fasteign, en þau nauðungarsölumál sem styttra eru á veg komin halda áfram sína leið þar til kemur að því að taka ákvörðun um lokasölu.

Frestunin gerist ekki sjálfkrafa heldur verður skuldari að óska eftir fresti, einnig þótt nauðungarsölu fasteignar hafi áður verið frestað. Ekki er gert ráð fyrir frekari fresti á nauðungarsölum en fram kemur í frumvarpinu.


Frumvarp til laga um breyting á lögum um nauðungarsölu, nr. 90/1991, með síðari breytingum

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum