Nr. 39/2009 - Ársfundur NEAFC
Dagana 9.-13. nóvember 2009 fór fram ársfundur Norðaustur Atlantshafs fiskveiðinefndarinnar (NEAFC) í höfuðstöðvum nefndarinnar í London.
Á fundinum var staðfestur samningur strandríkja um stjórnun veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum og kolmunnastofninum sem gerður var í október síðastliðnum. Einnig var gengið frá samningi um veiðar á karfa í Síldarsmugunni. Þar var aflamark lækkað milli ára úr 14.500 tonnum í 8.600 tonn. Ísland ásamt Noregi sat hjá við þá samþykkt enda hafa ríkin undanfarin ár stutt bann við veiðum í samræmi við ráðgjöf Alþjóða hafrannsóknaráðsins (ICES).
Noregur, Færeyjar og Evrópusambandið hafa ekki enn leyst, sín á milli, þá deilu sem uppi er um stjórnun makrílveiða og var það mál ekki tekið til afgreiðslu á ársfundinum. Þessi ríki munu hins vegar hittast að nýju í seinnihluta nóvembermánaðar til að leysa ágreining þann sem er upp á milli þeirra. Íslandi hefur ekki verið boðið til þess fundar. Á ársfundinum ítrekaði Ísland enn þá staðreynd að Ísland væri strandríki að makrílnum og skoraði á hin ríkin að viðurkenna það.
Síðastliðið vor kom út skýrsla frá Alþjóða hafrannsóknaráðinu um stofngerð úthafskarfa. Var þar staðfest að tvo stofna er að finna á Reykjaneshrygg, efri og neðri stofn. Þessu hafa íslenskir fiskifræðingar ásamt erlendum vísindamönnum haldið fram um margra ára skeið. Rússnesk stjórnvöld mótmæltu niðurstöðu ráðsins og halda því fram að einungis sé um einn stofn að ræða. Í vor hófust viðræður strandríkja við aðrar aðildarþjóðir NEAFC um úthafskarfa og í haust var einnig rætt við sendinefnd Rússlands um afstöðu þeirra í málinu. Í ljósi mikilla veiða rússneskra skipa á Reykjaneshrygg var lögð áhersla á að ná fram málamiðlun fyrir árið 2010 til að koma í veg fyrir stjórnlausar veiðar á svæðinu á næstu vertíð, þar sem ljóst var að rússnesk yfirvöld gætu ekki fallist á aðskilda veiðistjórnun efri og neðri stofns úthafskarfa. Samningurinn um stjórnun veiða fyrir árið 2010 byggist að mestu á samþykkt þeirri sem gerð var fyrir árið 2009. Samþykktar voru reglur til að bæta bæði eftirlit með veiðunum og löndun afla en misbrestur hefur verið á að aflaskýrslur, einkum frá aðildarríkjum ESB,- skili sér til NEAFC. Þá hefur íslenskum eftirlitsmönnum ekki verið heimilað að fylgjast með löndunum karfa skipa ESB þó ítrekað hafi verið eftir því leitað síðastliðið sumar. Nú þegar er veitt langt umfram ráðgjöf og því mikilvægt að hægt sé að fylgjast með afla skipa allra aðildarríkja NEAFC. Samningurinn var samþykktur af öllum aðildarríkjum NEAFC utan ESB. Íslensk stjórnvöld eru langt frá því að vera sátt við að þurfa að samþykkja óbreytta stjórnun enda telja þau að fylgja beri vísindalegri ráðgjöf og aðskilja stjórn veiða úr efri og neðri stofni. Áfram verður unnið að því markmiði.
Sá mikilvægi árangur náðist að samþykkt var bann við brottkasti helstu fisktegunda á samningssvæði NEAFC. Því miður gátu ekki öll aðildarríki NEAFC stutt tillöguna vegna reglna heima fyrir sem leyfa brottkast.
Kosinn var nýr forseti NEAFC, en Stefán Ásmundsson, núverandi forseti NEAFC, lætur af því embætti um áramót. Nýr forseti NEAFC sem taka mun við af Stefáni er Sergey Belikov frá Rússlandi. Í ár eru 50 ár liðin frá því að NEAFC var stofnað og jafnframt 10 ár frá því að nýr samningur um starfsemi nefndarinnar var samþykktur.
Í íslensku sendinefndinni voru Hrefna Karlsdóttir sem jafnframt var formaður og Steinar I. Matthíasson frá Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, Þorsteinn Sigurðsson frá Hafrannsóknastofnuninni, Auðunn Ágústsson frá Fiskistofu og Kristján Þórarinsson frá LÍÚ.