Hoppa yfir valmynd
20. nóvember 2009 Dómsmálaráðuneytið

Starfshópi falið að gera tillögur að vistun ungra fanga í samræmi við Barnasáttmála Sþ

Frumvarp til laga um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins (Barnasáttmálann) liggur nú fyrir í samræmi við þingsályktun sem samþykkt var á Alþingi 16. mars síðastliðinn. Ragna Árnadóttir dómsmála- og mannréttindaráðherra hefur kynnt frumvarpið fyrir ríkisstjórn og stefnt er að framlagningu þess á Alþingi innan tíðar. Til að hægt sé að falla frá yfirlýsingu sem gerð var við fullgildingu samningsins hér á landi hefur ráðherra sett á fót starfshóp til að koma með tillögur að fyrirkomulagi á vistun ungra fanga sem væri í samræmi við Barnasáttmálann.

Samningurinn um réttindi barnsins var undirritaður af Íslands hálfu 26. janúar 1990 og fullgiltur 28. október 1992. Hann öðlaðist gildi gagnvart Íslandi 27. nóvember 1992. Við fullgildingu samningsins var litið svo á að íslensk löggjöf væri í samræmi við ákvæði hans og var hann því fullgiltur án fyrirvara af hálfu Íslands, en lagðar voru fram sérstakar yfirlýsingar vegna tveggja ákvæða, önnur varðandi ákvarðanir um aðskilnað barna og foreldra og hin varðandi aðskilnað ungra fanga frá fullorðnum.

Ísland hefur nú fallið frá fyrri yfirlýsingunni þar sem gerðar hafa verið lagabreytingar sem samræmast ákvæðum samningsins. Hin yfirlýsingin stendur eftir og hefur dómsmála- og mannréttindaráðherra sett á fót áður nefndan starfshóp, sem í eiga sæti fulltrúar ráðuneytisins, Barnaverndarstofu og Fangelsismálastofnunar. Hópurinn hefur það hlutverk að koma með tillögur að fyrirkomulagi um vistun ungra fanga sem væri í samræmi við Barnasáttmálann svo unnt sé að falla frá yfirlýsingunni.

Sjá nánar í vefriti dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins

Frumvarp til laga um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta