Hoppa yfir valmynd
15. desember 2009 Forsætisráðuneytið

Bráðabirgðaniðurstöður ESA í fleiri málum varðandi neyðarlögin

Sem kunnugt er tilkynnti Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) með bréfi dags. 4. desember sl. að stofnunin hefði komist að bráðabirgðaniðurstöðu vegna kvörtunar hóps almennra kröfuhafa á hendur gömlu bönkunum, vegna aðgerða íslenskra yfirvalda í tengslum við setningu laga nr. 125/2008 (sk. neyðarlaga). Bráðabirgðaniðurstaða ESA var sú að ákvæði laganna, einkum varðandi forgang sem innstæðum var veittur og ráðstafanir íslenskra stjórnvalda á grundvelli laganna, samræmist EES-samningnum og öðrum lagalegum skilyrðum. ESA benti á að önnur úrræði hafi ekki verið sjáanleg en þau sem gripið var til sem hefðu getað spornað við algjöru hruni efnahagslífsins á Íslandi. Jafnframt féllst ESA á það sjónarmið stjórnvalda að neyðarlögin og ákvarðanir FME hafi verið einu aðgerðirnar sem voru trúverðugar við þær aðstæður sem uppi voru.

ESA hefur nú tilkynnt um bráðabirgðaniðurstöðu vegna sjö annarra kvartana erlendra fjármálastofnana sem eru almennir kröfuhafar gagnvart einhverjum af gömlu bönkunum, vegna laganna og aðgerða íslenskra yfirvalda í tengslum við þau. Bráðabirgðaniðurstaða ESA er í öllum tilvikum á sama veg og í niðurstöðunni frá 4. desember, þ.e. fallist er á sjónarmið Íslands í málunum, forgangur sem innstæðum var veittur fær staðist að mati ESA og íslensk stjórnvöld höfðu að mati stofnunarinnar rétt til að verja bankakerfið og almannaöryggi. Ekki er fjallað um hugsanlega mismunun milli innlendra og erlendra innstæðueigenda í neinu þessara mála, fremur en í því máli sem tilkynnt var um þann 4. desember.

Hjálagt fylgja:


Nánari upplýsingar veitir Jóhannes Karl Sveinsson hrl., Landslögum, en forsætisráðuneytið fól honum að gæta hagsmuna ríkisins í þessu máli.



Reykjavík 15. desember 2009

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta