Hoppa yfir valmynd
15. desember 2009 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Samkomulag Íslands og Evrópusambandsins í loftslagsmálum

Ráðherraráð Evrópusambandsins ákvað á fundi sínum í dag að ganga til samninga við Ísland um fulla þátttöku Íslands í aðgerðum ESB til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda eftir 2012, en þá lýkur fyrsta skuldbindingartímabili Kýótóbókunarinnar. Með bréfi dagsettu 3. júní sl. til formennskuríkis og framkvæmdastjórnar ESB óskaði Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra eftir því að grundvöllur slíks samkomulags yrði kannaður.

Með samþykkt ákvörðunarinnar er framkvæmdastjórn ESB falið að leggja fram tillögu að samningi við Ísland um sameiginlega framkvæmd á markmiðum nýs loftslagssamnings, sem verði fullgiltur jafnhliða nýjum alþjóðlegum loftslagssamningi. Slíkur samningur á milli Íslands og ESB á að vera í samræmi við ákvæði og markmið orku- og loftslagsáætlunar ESB. Texta samþykktar ráðherraráðsins má nálgast hér á heimasíðu þess.

Á grundvelli EES samningsins mun stór hluti losunar gróðurhúsalofttegunda á Íslandi falla undir viðskiptakerfi ESB frá og með 1. janúar 2013. Þar er m.a. um að ræða alla losun frá stóriðju, og er reiknað með að rúmlega 40% af allri losun á Íslandi verði úthlutað innan viðskiptakerfis ESB frá þeim tíma. Að óbreyttu þyrfti þessi losun einnig að uppfylla skuldbindingar Íslands í væntanlegu nýju alþjóðlegu samkomulagi eftir 2012. Það væri flókið fyrir Ísland og íþyngjandi að þurfa að taka á sig tvíþættar skuldbindingar, í gegnum alþjóðlegt samkomulag annars vegar og EES-samninginn hins vegar. Með sameiginlegum skuldbindingum Íslands og ESB gagnvart nýju alþjóðasamkomulagi eftir 2012 er komið í veg fyrir slíkt og tryggt að sömu reglur munu gilda fyrir losun gróðurhúsalofttegunda frá stóriðju á Íslandi og í öðrum ríkjum á evrópska efnahagssvæðinu. Með þessu fyrirkomulagi verður ekki þörf á sérákvæðum varðandi stóriðju eða aðra geira á Íslandi eftir 2012, en slíkum sérákvæðum fylgja jafnan ókostir.

Á fundi ríkisstjórnar Íslands sl. föstudag var umhverfisráðherra gefin heimild til að styðja samningsmarkmið ESB um allt að 30% niðurskurð á losun gróðurhúsalofttegunda á Kaupmannahafnarráðstefnunni – að því gefnu að samkomulag næðist um sameiginlegar skuldbindingar Íslands og ESB. Sú staða gerir Íslendingum fært að setja fram metnaðarfylltri markmið um losun en stjórnvöld hafa sett fram hingað til.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta