Nýr umsóknarfrestur í Norðurslóðaáætlun
Nú hefur verið auglýstur fimmti umsóknarfrestur Norðurslóðaáætlunar með lokadagsetningu 24. mars 2010. Að þessu sinni er lögð sérstök áhersla á verkefni er falla að markmiðum um
1. Efling nýsköpunar og samkeppnishæfni á jaðarsvæðum
2. Sjálfbær þróun náttúruauðlinda og samfélags
Í ljósi þeirra efnahagslegu þrenginga sem þátttökulönd áætlunarinnar standa nú frammi fyrir er lögð sérstök áhersla á verkefni sem eru líkleg til að skapa ný störf til að takast á við vaxandi atvinnuleysi og þróa skapandi lausnir. Ákveðin tækifæri til sóknar felast í núverandi efnahagsástandi og lögð er áhersla á að þau séu nýtt. Með aukinni samvinnu hinna ýmsu greina má ná árangri og mætti nefna samstarf skapandi greina við hefðbundið atvinnulíf í því sambandi.
Þrátt fyrir ofangreindar megináherslur um verkefni þá hafa verið greind eftirfarandi verkefnasvið sem enn vantar verkefni.
1. Þekkingaryfirfærsla og samstarfsnet rannsóknastofnana og fyrirtækja með að markmiði að auka getu til nýsköpunar, ná fram skilvirkara nýsköpunarkerfi og bætta samkeppnishæfni.
2. Samstarfsverkefni þéttbýlis og dreifbýlis um þróun þjónustu.
Þessu til viðbótar má nefna eftirfarandi áherslur: samstarf fyrirtækja á sviði markaðssetningar, hagnýtingu tölvutækni til samskipta, nýjar þjónustur á sviði samgangna og menningarmála.
Opnað verður fyrir umsóknir í 6. umsóknarfrest 3. september 2010 og verða áherslur hans kynntar í júlí 2010.
Að öðru leyti vísast til upplýsinga á vef Norðurslóðaáætlunar http://www.northernperiphery.eu og Byggðastofnunar http://www.byggdastofnun.is/
Nálgast má auglýsingu um fimmta umsóknarfrest hér