Niðurstaða útboðs á tollkvóta vegna innflutnings á pottaplöntum og afskornum blómum
Tilkynning frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu
Mánudaginn 14. desember sl. rann út tilboðsfrestur í tollkvóta á blómum vegna fyrri hluta ársins 2010.
Tvö tilboð bárust um innflutning á blómstrandi pottaplöntum, (0602.9091) samtals 2.000 stk. á meðalverðinu 161 kr./stk. Hæsta boð var 161 kr./stk. en lægsta boð var 160 kr./stk.
Tvö tilboð bárust um innflutning á öðrum pottaplöntum, (0602.9093) samtals 2.500 stk. á meðalverðinu 161 kr./stk. Hæsta boð var 161 kr./stk. en lægsta boð var 160 kr./stk.
Tvö tilboð bárust vegna innflutnings á tryggðablómum (0603.1400) samtals 9.000 stk. á meðalverðinu 6 kr./stk. Hæsta boð var 45 kr./stk. en lægsta boð var 1 kr./stk.
Þrjár umsóknir bárust um innflutning á afskornum blómum, samtals 97.000 stk. og náðu umsóknir ekki tilteknum stykkjafjölda sem í boði var eða 166.250 stk. Úthlutað var án útboðs.
Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða/umsókna þeirra:
Blómstrandi pottaplöntur janúar – júní 2010
Magn (stk) |
Tilboðsgjafi |
---|---|
2.000 |
Húsasmiðjan/Blómaval |
Aðrar pottaplöntur janúar – júní 2010
Magn (stk) |
Tilboðsgjafi |
---|---|
2.500 |
Húsasmiðjan/Blómaval |
Tryggðablóm janúar – júní 2010
Magn (stk) |
Tilboðsgjafi |
---|---|
1.200 |
Gróðurvörur ehf |
7.800 |
Samasem ehf. |
Afskorin blóm janúar – júní 2010
Magn (stk) |
Tilboðsgjafi |
---|---|
12.000 |
Gróðurvörur ehf. |
35.000 |
Grænn Markaður ehf. |
50.000 |
Samasem ehf. |
Reykjavík, 17. desember 2009
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið