Hoppa yfir valmynd
17. desember 2009 Matvælaráðuneytið

Verkefnasjóður sjávarútvegsins

Verkefnasjóður sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, deild um sjávarrannsóknir á samkeppnissviði, auglýsir eftir umsóknum um styrki til rannsókna- og þróunarverkefna.

Sjóðurinn mun fyrst og fremst styrkja rannsóknir á sjávarlífverum sem nú eru nytjaðar eða sem mögulegt væri að nytja. Áhersla verður lögð á verkefni sem efla rannsókna- og þróunarstarf á lífríki sjávar umhverfis Ísland og efla til lengri tíma litið sjálfbæra nýtingu auðlinda hafsins og samkeppnishæfni sjávarútvegs, grunnslóðarannsóknir, þorskrannsóknir og verkefni sem tengjast þróun aðferða við nýtingu á lífverum sjávar, s.s. líftækni.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ákveðið að framlag til deildar sjóðsins um sjávarrannsóknir á samkeppnissviði verði hækkað um 25 m.kr. á árinu. Framlag til sjóðsins verður því 100 m.kr. á árinu 2009.

Við mat umsókna verður lögð áhersla á nýnæmi verkefnisins m.t.t. nýrrar þekkingar og/eða aukinna nýtingarmöguleika á lífríki sjávar. Veittir verða styrkir til stærri verkefna að upphæð 6 m.kr. að hámarki hvert og til smærri verkefna að hámarki 2 m.kr. hvert. Hver styrkur nemur að hámarki 50% af áætluðum heildarkostnaði viðkomandi verkefnis.

Allir geta sótt um styrki; einstaklingar, fyrirtæki, rannsókna- og háskólastofnanir. Í stærri verkefnum er sérstaklega hvatt til samstarfs mismunandi aðila með þátttöku vísindamanna víða af landinu.

Umsóknarfrestur er til 17. janúar 2010 og skulu umsóknir sendar til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, Skúlagötu 4, 150 Reykjavík. Umsóknirnar skulu einnig berast á rafrænu formi á netfangið: [email protected].

Umsóknir sem berast eftir 17. janúar 2010 verða ekki teknar gildar nema póststimpill sýni að umsóknin hafi verið póstlögð ekki síðar en þann dag.

Þeir sem hafa fengið styrk úr sjóðnum við síðustu úthlutun og hyggjast sækja um framhaldsstyrk skulu skila skýrslu um stöðu verkefnisins, ella koma viðkomandi umsóknir ekki til greina við úthlutun.

Nánari upplýsingar um sjóðinn og leiðbeiningar um frágang umsókna er að finna hér.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta