Embætti skólameistara Framhaldsskóla við utanverðan Eyjafjörð
Umsóknarfrestur um stöðu skólameistara við Framhaldsskólann við utanverðan Eyjafjörð rann út þriðjudaginn 15. desember sl. Mennta- og menningarmálaráðuneyti bárust sjö umsóknir um stöðuna, frá fjórum konum og þremur körlum. Umsækjendur eru:
- Elías Gunnar Þorbjörnsson, meistaranemi,
- Jón Eggert Bragason, aðstoðarskólameistari við Framhaldsskólann í Mosfellsbæ,
- Jóna Vilhelmína Héðinsdóttir, skólastjóri Grunnskóla Ólafsfjarðar,
- Lára Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri,
- Lind Völundardóttir, meistaranemi,
- Margrét Lóa Jónsdóttir, verkefnastjóri,
- Pétur Ingi Guðmundsson, aðstoðarskólameistari við Fjölbrautaskóla Snæfellinga.
Miðað er við að mennta- og menningarmálaráðherra skipi í stöðuna til fimm ára frá 1. janúar nk., að fenginni umsögn hluteigandi skólanefndar, sbr. 1. mgr. 6. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996, með síðari breytingum.