Áætluð framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til reksturs grunnskóla 2010
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga frá 8. desember síðastliðinn um áætluð framlög til sveitarfélaga á árinu 2010 vegna reksturs grunnskóla.
Áætluð framlög vegna sérþarfa fatlaðra nemenda
Ráðgjafarnefndin leggur til að áætlun um úthlutun framlaga vegna sérþarfa fatlaðra nemenda á árinu 2010, sbr. 4. gr. rgl. nr. 351/2002, nemi samtals um 1.383 milljónum króna. Annars vegar er um að ræða áætlað framlag til Reykjavíkurborgar að fjárhæð 650 milljónir króna á grundvelli samnings vegna reksturs sérskóla/sérdeilda, sem áður voru rekin af ríkinu, en hins vegar er áætlað framlag að fjárhæð um 733 milljónir vegna sérþarfa fatlaðra nemenda á grunnskólaaldri í öðrum sveitarfélögum en Reykjavíkurborg.
Áætluð framlög vegna nýbúafræðslu
Ráðgjafarnefndin leggur til að áætlun um úthlutun framlaga vegna nýbúafræðslu árið 2010, sbr. 5. gr. rgl. nr. 351/2002, nemi samtals um 140 milljónum króna.
Almenn framlög til reksturs grunnskóla
Áætlað er að ráðstöfunarfjármagn Jöfnunarsjóðs til greiðslu almennra framlaga til reksturs grunnskóla, sbr. 3. gr. rgl. nr. 351/2002, muni lækka um 3% milli áranna 2009 og 2010.
Stefnt er að því að áætlun um úthlutun almennra framlaga eftir sveitarfélögum liggi fyrir í byrjun janúar 2010.