Hoppa yfir valmynd
28. desember 2009 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Afmælisfundur Hins íslenska náttúrufræðifélags

Hið íslenska náttúrufræðifélag 120 ára
Hið íslenska náttúrufræðifélag 120 ára

Hið íslenska náttúrufræðifélag hélt í dag fund í tilefni af 120 ára afmæli sínu. Yfirskrift hennar var „Náttúruminjasafn Íslands: Hvernig safn viljum við eignast?“ Fjölluðu ræðumenn um það ástand sem lengi hefði ríkt í húsnæðismálum Náttúruminjasafnsins, sem áratugum saman hefur verið á hrakhólum. Í lok fundarins voru pallborðsumræður þar sem Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra og Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra voru meðal gesta.

Ráðherrarnir tóku undir með fundargestum að tími væri kominn til að leysa úr málum safnsins. Menntamálaráðherra benti á að innan ráðuneytisins væri nú í gangi vinna við að móta framtíðarsýn safnsins, og vonast hún til að þeirri vinnu ljúki nú á vormánuðum.

„Náttúran á Íslandi er sálin í samfélaginu. Hún er allt í kring og þar af leiðandi hættir okkur kannski til að taka henni sem sjálfsagðri,“ sagði Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra við þetta tilefni. Segir hún áratugalanga baráttu fyrir fullnægjandi húsnæði fyrir Náttúruminjasafnið jafnframt vera til marks um þá forgangsröðun sem viðgengist hefur, að náttúran og náttúruvernd hafi ekki notið sannmælis. Undanfarið hafi áherslur í náttúruvernd breyst og vegur náttúrunnar fari vaxandi, svo von sé til að úr fari að rætast.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta