Evrópusamvinna á Háskólatorgi 14. janúar 2010
Kynning á tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi verður haldin á Háskólatorgi fimmtudaginn 14. janúar 2010 kl. 15-18. Þar gefst færi á að hitta fulltrúa evrópskra samstarfsáætlana á Íslandi og kynna sér möguleika á styrkjum og samstarfi á öllum sviðum menntamála, rannsókna, vísinda, nýsköpunar, menningar og atvinnulífs.
Sameiginlegur upplýsingavefur landsskrifstofa og þjónustuskrifstofa Evrópuáætlana er evropusamvinna.is. Þar má finna grunnupplýsingar um allar þær áætlanir og styrkjamöguleika sem Íslendingum bjóðast ásamt tenglum í viðeigandi heimasíður. Evropusamvinnu.is er ætlað að vera fyrsta stopp fyrir þá sem hafa áhuga á Evrópusamstarfi, hvort sem það er til að sækja um styrki eða leita sér upplýsinga og þjónustu, en vita e.t.v. ekki alveg hvar þeir eiga að byrja.
Íslendingar hafa aðgang að fjölda Evrópuáætlanna í gegnum EES samninginn og hafa verið virkir í Evrópusamstarfi allt frá því hann tók gildi. Í gegnum samstarfsáætlanir Evrópusambandsins er hægt að sækja styrki og stuðning innan flestra sviða menntunar og atvinnulífs og má þar telja áætlanir á sviði menntunar á öllum stigum, menningar, rannsókna og vísinda, jafnréttis, vinnumiðlunar og fyrirtækjasamstarfs. Einstaklingar, skólar, fyrirtæki, stofnanir og samtök finna eitthvað við sitt hæfi á Evrópusamvinnukynningunni á Háskólatorgi.
Eftirfarandi áætlanir og þjónustuveitur verða kynntar á Háskólatorgi:
Áætlun | Umsjónaraðili/landsskrifstofa | ||
7. rannsóknaáætlun ESB | RANNÍS | ||
Menntaáætlun ESB | Landsskrifstofa Menntaáætlunarinnar | ||
Evrópa unga fólksins | Landsskrifstofa Evrópu unga fólksins / UMFÍ | ||
Evróvísir – tækifæri fyrir ungt fólk | Landsskrifstofa Evrópu unga fólksins / UMFÍ | ||
EURES-evrópsk vinnumiðlun | Vinnumálastofnun | ||
Menningaráætlunin | Upplýsingaþjónusta menningaráætlunarinnar á Íslandi | ||
MEDIA kvikmynda-, sjónvarps- og margmiðlunaráætlun ESB | MEDIA upplýsingaþjónustan | ||
Enterprise Europe Network – CIP | Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Útflutningsráð Íslands og RANNÍS | ||
Norðurslóðaáætlunin | Byggðastofnun | ||
eTwinning | Landsskrifstofa Menntaáætlunarinnar | ||
PROGRESS – jafnréttis og vinnumál | Félags- og tryggingamálaráðuneyti | ||
Daphne III – gegn ofbeldi á konum og börnum |
|
||
Almannavarnaáætlunin | Ríkislögreglustjóri |