Nr. 1/2010 - Veiðar á íslenskri síld mun meiri en búast mátti við
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jón Bjarnason, heimilaði með reglugerð dags. 29. desember 2009 auknar veiðar úr stofni íslensku sumargotssíldarinnar. Viðbótin sem hann ákvað var 7 þúsund tonn. Þetta magn kemur til viðbótar þeim 40.000 tonnum sem þegar höfðu verið ákveðin. Tiltekið er í reglugerðinni að veiðar á þessum 7 þúsund tonna viðbótarúthlutun skuli skipulagðar í samvinnu við Hafrannsóknarstofnunina í því skyni að kanna, með sýnatökum, ástand síldarstofnsins. Þannig þurfa veiðiskip að haga sýnatökum í samráði við Hafrannsóknastofnunina og með þeim hætti sem stofnunin ákveður. Samkvæmt síðustu fréttum er eitt skip haldið til veiða og vonir manna standa til þess að enn megi veiða síldina til manneldis.
Með ákvörðuðum heildarafla upp á 47.000 tonn verður veiðin á yfirstandandi fiskveiðiári u.þ.b. 35% af meðaltali afla fiskveiðiáranna 2005/2006 – 2007/2008, eða vertíðarnar áður en sýkingar varð vart í stofninum. Segja má að þessi veiði sé langt umfram væntingar, en á tímabili í fyrra voru mestar líkur á að engin veiði yrði heimiluð.
Vakin er hér athygli á þeirri ákvörðun Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðaráðherra, frá því í haust, að nú er skylt að færa allan afskurð sem fellur til við vinnslu síldarinnar um borð í fullvinnsluskipum í land. Þá ákvað ráðherra einnig breytingu á reglugerð um veiðar á íslenskri sumargotssíld þar sem heimild til að sleppa niður lifandi síld í nót var afturkölluð.
Það er mat ráðherra að vel hafi tekist til með þessar breytingar og margt bendi til að reglurnar verði látnar gilda í framtíðinni um veiðar af þessu tagi. Hér er tvímælalaust verið að stíga ákveðið skref til þess að bæta umgengni okkar við sjávarauðlindina.