Hoppa yfir valmynd
19. janúar 2010 Matvælaráðuneytið

Nýtt ferðamálaráð skipað

Katrín Júlíusdóttir, iðnaðrráðherra og ráðherra ferðamála skipaði í dag í ferðamálaráð til fjögurra ára. Formaður ferðamálaráðs er Svahildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar. Varaformaður er Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjarstjóri í Árborg.

Hlutverk ferðamálaráðs skv. 6. gr. laga um skipan ferðamála er að:

  • Gera árlega eða oftar, tillögur til ráðherra um markaðs- og kynningarmál ferðaþjónustunnar.
  • Vera ráðgefandi aðili fyrir ráðherra um áætlanir í ferðamálum.
  • Veita umsagnir um breytingar á lögum og reglum er varða ferðamál og annað er ráðherra felur ráðinu eða ráðið telur ástæðu til að taka upp í þágu ferðaþjónustunnar.   

Aðrir fulltrúar í ferðamálaráði eru Ásbjörn Jónsson og Unnur Halldórsdóttir frá Ferðamálasamtökum Íslands. Anna G. Sverrisdóttir, Helgi Már Björgvinsson og Sævar Skaptason frá Samtökum ferðaþjónustunnar. Aldís Hafsteinsdóttir og Dofri Hermannsson eru fulltrúar Sambands íslenskra sveitarfélaga og Jón Ásbergsson frá Útflutningsráði.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta