Hoppa yfir valmynd
21. janúar 2010 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Endurskoðun á byggingarreglugerð hafin

Vinna er hafin við að endurskoða byggingarreglugerð, sem ætlað er að standast samanburð við það sem best gerist hvað varðar sjálfbæra þróun þar sem opin stjórnsýsla, gegnsæi og lýðræðisumbætur eru höfð að leiðarljósi. Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skipaði nefnd til endurskoðunar reglugerðarinnar í dag.

Nefndin mun í starfi sínu hafa hliðsjón af nýju frumvarpi um mannvirkjalög, sem lagt verður fyrir Alþingi á næstunni, og er ætlað hafa víðtækt samráð við ýmsa hagsmunaaðila við endurskoðun reglugerðarinnar. Meðal nýmæla  sem nýrri byggingarreglugerð er ætlað að taka til eru eftirtalin atriði:

  • Aukin áhersla á umhverfismál, m.a. með því að styðja vistvænni samgöngumáta og skapa aðstæður til flokkunar sorps.
  • Byggingar sem ætlaðar eru börnum og ungmennum verði hannaðar með það að markmiði að skapa örugg skilyrði til lífs og þroska, t.d. með því að tryggja vandaða hljóðhönnun í skólaumhverfi.
  • Aðgengismál hafi það markmið að uppfylla ákvæði samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Jafnframt er nefndinni ætlað að leggja til stjórntæki til að koma í veg fyrir að mannvirki sem ekki uppfylla skilyrði laganna eða reglugerðarinnar verði tekin í notkun nema að uppfylltum þessum skilyrðum.

Nefndin er þannig skipuð:

  • Björn Karlsson, brunamálastjóri, er formaður nefndarinnar
  • Ólöf Örvarsdóttir, skipulagsstjóri Reykjavíkurborgar
  • Björn Guðbrandsson, arkitekt og stundakennari við Háskólann í Reykjavík

Að auki munu tveir starfsmenn umhverfisráðuneytisins starfa með nefndinni:

  • Hafsteinn Pálsson, verkfræðingur
  • Steinunn Fjóla Sigurðardóttir, lögfræðingur
Erindisbréf nefndarinnar er hægt að lesa hér.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta