Hoppa yfir valmynd
21. janúar 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Samráðshópur skipaður um framkvæmd laga um greiðsluvandaúrræði

Að höfðu samráði við félags- og tryggingamálanefnd Alþingis hefur Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, skipað þverpólitískan samráðshóp til að fjalla um framkvæmd laga nr. 30/2009 um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins sem samþykkt voru á Alþingi í október síðastliðnum. Hver stjórnmálaflokkur á einn fulltrúa í samráðshópnum, en fjöldi nefndarmanna er ekki tengdur atkvæðavægi flokka. Af því leiðir að hópurinn er samráðsvettvangur sem tekur ekki stefnumarkandi ákvarðanir.  

Markmið með starfi hópsins er að tryggja aðgang flokka og hópa á Alþingi að upplýsingum um þróun mála og greiða fyrir upplýstri umræðu og stefnumörkun. Í því skyni er gert ráð fyrir að hópurinn fái reglulega frá ýmsum stofnunum upplýsingar um þróun helstu kennitalna sem skipta máli í þróun skuldabyrði og greiðslugetu heimila og einstaklinga. Þá er gert ráð fyrir að samráðshópurinn geti kallað til samráðs og upplýsinga þá aðila sem hann telur mikilvæga fyrir hlutverk og markmið hópsins.

Skipað var í samráðshópinn samkvæmt tilnefningum en félags- og tryggingamálaráðherra skipar formann án tilnefningar. Fulltrúar eru þessir:

  • Magnús Pétursson, ríkissáttasemjari, skipaður án tilnefningar, formaður,
  • Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, tilnefnd af þingflokki Samfylkingarinnar,
  • Unnur Brá Konráðsdóttir, tilnefnd af þingflokki Sjálfstæðisflokksins,
  • Marinó G. Njálsson, tilnefndur af þingflokki Hreyfingarinnar,
  • Guðmundur Steingrímsson, tilnefndur af þingflokki Framsóknarflokksins,
  • Lilja Mósesdóttir, tilnefnd af þingflokki Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs,
  • Þráinn Bertelsson, utan þingflokks.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta