Upplýsingavefur um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar opnaður
Upplýsingavefur dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar 6. mars næstkomandi hefur verið opnaður. Á vefnum, sem hefur slóðina www.kosning.is, eins og við fyrri kosningar, er að finna fróðleik og hagnýtar upplýsingar er lúta að framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar.
Upplýsingarnar nýtast almennum kjósendum og þeim sem vinna að kosningunum, t.d. varðandi kjörskrá, utankjörfundaratkvæðagreiðslu og atkvæðagreiðslu á kjördegi. Fjallað er um lög og reglugerðir, framkvæmd kosninga og fleira.
Senda má fyrirspurnir til ráðuneytisins um hvaðeina sem lýtur að framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar og ábendingar varðandi vefinn á netfangið [email protected].