Ráðherra afhenti 10 vetnisrafbíla
Árið 1988 tók Ríkisstjórn Íslands þá ákvörðun að auka hlut endurnýjanlegrar íslenskrar orku í samgöngum. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar í þeim efnum og í dag afhenti Iðnaðarráðherra, Katrín Júlíusdóttir, 10 Ford Focus FCV vetnisrafbíla til ýmissa notenda sem munu taka þátt í stóru vetnisverkefni á næstunni. Um er að ræða fyrirtækin Brimborg, Íslenska Nýorku, Ísafold Travel, Keili, Orkuveitu Reykjavíkur, Landsvirkjun, Icelandic Hydrogen, Elding hvalaskoðun, Nýsköpunarmiðstöð og Skeljung. Fyrirtækin munu nota vetnisbílana daglega, við krefjandi aðstæður svo hægt sé að safna upplýsingum um eiginleika vetnisrafbíla í daglegri notkun.
Vetnistækni felur í sér mikla möguleika á sjálfbæra þróun og efnahagslegra framafara hér á landi. Raftæknin er talin ein sú umhverfisvænasta sem völ er á. Þar sem vetni er notað er hreint vatn eini „útblásturinn“.
Vegna mikils framboðs grænnar raforku og vatni hér á landi er ljóst að þróun vetnisrafbíla er afar áhugaverð fyrir Íslendinga.