Hoppa yfir valmynd
29. janúar 2010 Matvælaráðuneytið

Nr. 5/2010 - Úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2009/2010

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jón Bjarnason, undirritaði í dag reglugerðir um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2009/2010. Reglugerðirnar eru samhljóða reglugerðum síðustu fiskveiðiára í öllum aðalatriðum. Verður sveitarstjórnum tilkynnt bréflega um hve mikið kemur í hlut hvers byggðarlags af þeim 3.885 þorskígildistonnum sem til ráðstöfunar eru, í framhaldi af birtingu reglugerðanna í B-deild Stjórnartíðinda.

Eitt af markmiðum laga um stjórn fiskveiða er að treysta atvinnu og byggð í landinu öllu. Ákvæði um byggðakvóta voru á sínum tíma sett m.a. með hliðsjón af því markmiði.

Ráðherra stefnir á að leggja fram í ríkisstjórn lagafrumvarp um breytingu á úthlutun byggðakvóta á þann veg, að fiskiskip sem framselja eða flytja frá sér meiri aflaheimildir í þorskígildum talið en þeir fá framselt eða flutt til sín, komi ekki til greina við úthlutun byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2010/2011 og síðar. Með þessari aðgerð er talið að markmið fiskveiðistjórnarlaganna um tryggja trausta atvinnu og byggð í landinu verði betur náð.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jón Bjarnason, hefur jafnframt í hyggju að leggja til við ríkisstjórn breytingar á núgildandi lögum sem lögfesta ákvæði um heimild aðila til að flytja byggðakvóta milli fiskveiðiára með sama hætti og öðrum er unnt. Er þannig meðal annars komið til móts við áliti umboðsmanns Alþingis frá 14. desember 2009.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jón Bjarnason, stefnir jafnframt að því að úthlutun byggðakvóta fyrir næsta fiskveiðiár, þ.e. 2010/2011, fari fram í upphafi þess fiskveiðiárs, þannig að útgerðir sem hlut eiga að máli viti fyrr en áður hve miklar aflaheimildir þær hafa á fiskveiðiárinu.

Reglugerð um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2009/2010.

Reglugerð um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2009/2010.

 



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta