Setning ráðuneytisstjóra framlengd
Setning Þórunnar J. Hafstein, skrifstofustjóra dómsmála- og löggæsluskrifstofu ráðuneytisins, í embætti ráðuneytisstjóra hefur verið framlengd til 15. maí 2010 vegna framlengds veikindaleyfis Þorsteins Geirssonar ráðuneytisstjóra til sama tíma. Bryndísi Helgadóttur, settum skrifstofustjóra lagaskrifstofu, hefur einnig verið falið að vera áfram staðgengill ráðuneytisstjóra til 15. maí 2010.