Hoppa yfir valmynd
29. janúar 2010 Matvælaráðuneytið

Úthlutun aflaheimilda fyrir árið 2010 úr stofni Austur-Atlantshafs bláuggatúnfisks.

Auglýsing

Úthlutun aflaheimilda fyrir árið 2010 úr stofni Austur-Atlantshafs bláuggatúnfisks

Ísland er aðili að Atlantshafs túnfiskveiðiráðinu (ICCAT). Samkvæmt stjórnunarráðstöfunum ráðsins sem Ísland hefur samþykkt, koma í hlut Íslands aflaheimildir fyrir árið 2010 sem nema 31 tonni af bláuggatúnfiski, með fyrirvara um breytingar. Um er að ræða veiðiheimildir samkvæmt samþykktum ICCAT úr stofni Austur-Atlantshafs bláuggatúnfisks (e. bluefin tuna in the East-Atlantic and the Mediterranean). Nánari upplýsingar um samþykktir ráðsins er að finna vefsíðu ICCAT (www.iccat.int).

Útgerðir sem hafa áhuga á að taka þátt í veiðum á bláuggatúnfiski á árinu 2010 skulu sækja um veiðiheimildir til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins fyrir 18. febrúar 2010.

Í umsókninni skal tilgreina áætlun um veiðarnar, m.a. veiðiskip, dráttarskip ef við á, veiðitímabil, veiðisvæði, veiðiaðferð, löndunarhöfn og nýting afurða. Ráðuneytið áskilur sér rétt til að hafna umsóknum sé ljóst að viðkomandi skip hafi ekki búnað til veiðanna eða að fyrirséð sé að það muni af öðrum ástæðum ekki stunda þær. Vakin er athygli á að Ísland er bundið af samþykktum ICCAT um veiðarnar.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta