Hoppa yfir valmynd
5. febrúar 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Auglýsing um styrki úr mótvægissjóði velferðarvaktarinnar

Velferðarvaktin auglýsir eftir umsóknum í mótvægissjóð vaktarinnar í samræmi við reglur sjóðsins. Tilgangur sjóðsins er að styðja við aðgerðir sem draga úr afleiðingum efnahagskreppunnar fyrir fjölskyldur og einstaklinga í landinu. Að þessu sinni eru til ráðstöfunar 15 milljónir króna. Styrkfjárhæð skal að jafnaði ekki vera lægri en 500.000 krónur og að hámarki helmingur heildarkostnaðar við verkefni.

Verkefni sem til greina kemur að styrkja eru:

  • Ný tímabundin verkefni fyrir tiltekna hópa sem orðið hafa illa úti í efnahagsástandinu.
  • Sérstök verkefni til að styðja starfsfólk sem aðstoðar þá sem eiga í miklum erfiðleikum.
  • Samræming verkefna og samstarfsverkefni á vegum þriðja geirans.

Umsóknarfrestur er til 1. mars næstkomandi.

Sótt skal um styrk á sérstöku umsóknareyðublaði.

Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Broddadóttir í síma 545 8100 eða með tölvupósti um netfangið [email protected]

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta