Nr. 7/2010 - Minni útflutningur á óunnum ísfiski
Samkvæmt bráðabirgðatölum Fiskistofu, sem eru í viðhengi með þessari fréttatilkynningu, hefur útflutningur á óunnum ísfiski bæði minnkað að magni til og einnig sem hlutfall af heildarafla. Samanburðurinn tekur til tímabilanna september 2009 til janúar 2010 og september 2008 til janúar 2009. Verulegur breytileiki er þó eftir tegundum.
Á fyrra tímabilinu voru flutt út 20.915 tonn af óunnum fiski en því seinna 14.929 tonn og er lækkunin 5.986 tonn, eða 28,6%.
Sé litið til breytinga á útflutningi á óunnum ísfiski sem hlutfall af heildarafla sömu viðmiðunartímabila, kemur í ljós að á fyrra tímabilinu var útflutningurinn 12,8% af heildarafla, en á því síðara var hann 9,4% af heildarafla. Þannig er um ríflega fjórðungslækkun að ræða. Það eru nokkur tíðindi, haldi þessi þróun áfram, því frá árinu 2003 hefur þetta hlutfall að mestu farið vaxandi.
Stefna sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jóns Bjarnasonar, hefur verið að knýja eigi á um frekari fullvinnslu afla hérlendis. Sú mikla aukning í útflutningi á óunnum afla undanfarin ár hefur ekki skapað ásættanlegt jafnvægi milli þessara markaða. Í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu hefur í samstarfi við Landssamband íslenskra útvegsmanna, Samtök fiskvinnslu án útgerðar og Félag íslenskra stórkaupmanna, verið lögð umtalsverð vinna í þetta mál. Beitt hefur verið ýmsum aðgerðum og þrýstingi innan ramma núverandi laga með það að markmiði að skapa betra jafnræði í aðgengi að þessum fiski fyrir innlendar fiskvinnslur.
Ýmsar skýringar kunna að vera fyrir ofangreindri þróun aðrar en aðgerðir stjórnvalda. Má í því sambandi nefna minni ýsuafla og aðrar breytingar í heildaraflamarki. Þá hefur samkeppnishæfni íslenskrar fiskvinnslu batnað, m.a. vegna veikingar íslensku krónunnar, með tilheyrandi aukinni atvinnusköpun fyrir landsmenn.
Bendingar eru um að störfum við fiskvinnslu hafi fjölgað eitthvað undanfarin misseri samkvæmt úrtakskönnunum Hagstofu Íslands.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jón Bjarnason, lýsir yfir ánægju sinni með þessa þróun og tiltekur að stjórnvöld muni fylgjast vel með þróuninni á næstu mánuðum og leggja vinnu í að framfylgja þeim aðgerðum sem þegar hafa verið ákveðnar.
Sjá töflu um útflutning á óunnum ísfiski