Mid Atlantic 2010 ferðakaupstefna
Katrín Júlíusdóttir, ferðamálaráðherra, heimsótti í dag Mid Atlantic 2010 ferðakaupstefnuna í Laugardalshöll.
Um 500 fulltrúar frá 14 löndum taka þátt í kaupstefnunni, sem er sú fjölmennasta sem hér hefur verið haldin.
Ráðherra gekk um sýninguna í fylgd forstjóra Icelandair, Birkis Hólm Guðnasonar og Svanhildar Konráðsdóttur, formanns Ferðamálaráðs.