Hoppa yfir valmynd
8. febrúar 2010 Dómsmálaráðuneytið

Námskeið til undirbúnings prófi til að öðlast réttindi til að vera héraðsdómslögmaður

Prófnefnd samkvæmt reglugerð nr. 1095/2007 um próf til að öðlast réttindi til að vera héraðsdómslögmaður, sbr. lög nr. 77/1998 um lögmenn og lög nr. 93/2004, hefur ákveðið að halda námskeið vorið 2010. Prófraunin skiptist í tvo hluta, auk verklegrar prófraunar.

Kennslugreinar í fyrri hluta eru: Einkamálaréttarfar, sakamálaréttarfar, fullnustu­réttarfar, samning lögfræðilegrar álitsgerðar og lögfræðileg skjalagerð. Kennslu­greinar í síðari hluta eru: Réttindi og skyldur lögmanna, þar á meðal siðareglur lögmanna og þóknun fyrir lögmannsstörf, málflutningur og önnur störf lög­manna, svo sem samningsgerð og meðferð stjórnsýslumála.

Í tengslum við nám­skeiðið fer fram kynning á rekstri lögmannsstofa og starfsemi Lögmannafélags Íslands og úrskurðarnefndar lögmanna. Auk kennslu í fyrri og síðari hluta er verklegur hluti, sem felst í aðstoð við flutning eins máls fyrir héraðsdómi. Kennsla fer fram í kennslusal Lögmannafélags Íslands að Álftamýri 9, 108 Reykjavík.

Stefnt er að því að kennsla í fyrri hluta fari fram dagana 24. til 26. febrúar og 1. til 5. mars 2010. (Tímar frá 9:15-12:00 og frá 13:15 eða 14:15-17:00 eða 18:00) Jafnframt er stefnt að því að próf í fyrri hluta námskeiðsins verði haldin á tímabilinu 12. til 26. mars 2010. Nánari upplýsingar um fjölda kennslustunda og fyrirkomulag kennslu verða kynntar síðar.

Stefnt er að því að kennsla í síðari hluta fari fram dagana 12. til 21. apríl 2010.

Verklega prófraun skal þreyta eftir að fyrri hluta prófi er lokið og eigi síðar en einu ári eftir að lokið er síðari hluta prófi.

Gjald fyrir þátttöku á fyrri hluta prófraunar er kr. 250.000 og greiðist við skrán­ingu. Gjald fyrir síðari hluta verður ákveðið síðar. Prófgjald er innifalið í nám­skeiðsgjaldi.

Skráning fer fram á skrifstofu Lögmannafélags Íslands að Álftamýri 9, Reykja­vík. Sími 568 5620. Fax 568 7057, en einnig er hægt að ganga frá skráningu með tölvupósti á netfangið: [email protected]. Við skráningu á námskeiðið þarf að til­greina nafn, kennitölu, heimilisfang, símanúmer (heimasíma, vinnusíma og gsm-síma), auk netfangs. Við skráningu skal jafnframt leggja fram afrit prófskírteinis eða vottorð háskóla til staðfestingar því að umsækjandi hafi lokið fullnaðarnámi í lögfræði með embættis- eða meistaraprófi.

Frestur til að skrá sig á námskeið er til 19. febrúar 2010.

Dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu, 5. febrúar 2010.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum