Virkjum karla og konur 10. febrúar 2010 fjölbreytni í forystu
Miðvikudaginn 10. febrúar 2010 efna Samtök atvinnulífsins, Félag kvenna í atvinnurekstri, Viðskiptaráð Íslands, Leiðtoga-Auður, iðnaðarráðuneytið, efnahags- og viðskiptaráðuneyti og Creditinfo til tímamótafundar á Hótel Nordica. Þar verður m.a. greint frá því hvaða leiðir viðskiptalífið hyggst fara til að fjölga konum í stjórnum fyrirtækja auk þess sem nýjar tölur Creditinfo um kynjahlutföll í atvinnulífinu verða birtar.
Skráning og morgunverður frá kl.8:00 en formleg dagskrá hefst stundvíslega kl. 8:15 og verður lokið ekki síðar en kl. 10:00.
Fundurinn er haldinn til að fylgja eftir samstarfssamningi SA, FKA og VÍ sem undirritaður var 15. maí 2009 um að fjölga konum í forystusveit íslensks atvinnulífs til loka ársins 2013 þannig að hlutur hvors kyns verði ekki undir 40%. Allir stjórnmálaflokkar sem sæti eiga á Alþingi skrifuðu undir samninginn og veita honum stuðning sinn.
Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, setur fundinn en fjöldi stjórnenda í atvinnulífinu mun stíga á stokk. Meðal þeirra er Þóranna Jónsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Auði Capital, sem mun fjalla um hvernig fjölbreytni bætir karla. Þóranna mun kynna ágrip úr nýlegri rannsókn um áhrif fjölbreyttrar samsetningar á verklag stjórna. Þá mun S. Alex Haslam prófessor við háskólann í Exeter flytja erindi um konur og forystuhlutverk: From Glass Ceiling to Glass Cliff.
Brugðið verður upp svipmyndum úr íslensku atvinnulífi og leitað svara við því hvers vegna það eru ekki fleiri konur í forystusveit atvinnulífsins.
Fundarstjórar eru Hermann Guðmundsson, forstjóri N1 og Margrét Kristmannsdóttir, framkvæmdastjóri Pfaff.
Tvö fyrir einn: Fyrir karl og konu sem mæta saman til fundarins er þátttökugjald kr. 3.900
ásamt morgunverði fyrir tvo.
Þátttökugjald er kr. 3.900 fyrir staka þátttakendur ásamt morgunverði.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ SKRÁ ÞÁTTTÖKU
Nánari upplýsingar á vef Samtaka atvinnulífsins: www.sa.is