Nr. 9/2010 - Fiskveiðisamningur milli Íslendinga og Færeyinga fyrir árið 2010
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Jacob Vestergaard starfsbróðir hans í Færeyjum hittust í Þórshöfn í Færeyjum í gær til að ganga frá fiskveiðisamningi Íslendinga og Færeyinga fyrir árið 2010. Óhætt er að segja að fundurinn gekk vel og góður andi ríkti.
Samkvæmt samningnum fá færeysk skip heimild til að veiða 30 þúsund lestir af loðnu við Ísland á loðnuvertíðinni 2010/2011 svo fremi að útgefinn kvóti verði a.m.k. 500 þúsund lestir. Sé gefinn út minni kvóti fá Færeyingar 5% í sinn hlut. Færeyingar hafa heimild til að frysta loðnu og vinna um borð og landa loðnu til manneldis erlendis. Mega þeir þannig frysta 3/4 kvótans en þó þannig að aldrei fari meira en 1/3 kvótans til manneldisvinnslu eftir 15. febrúar, sé útgefinn kvóti 500 þúsund lestir eða minna. Sé útgefinn kvóti meira en 500 þúsund lestir er Færeyingum heimilt að frysta 2/3 kvótans fyrir 15. febrúar.
Samkomulag er um að þjóðirnar fái áfram að veiða kolmunna og norsk-íslenska síld innan lögsögu hvorrar annarrar. Hámarksfjöldi íslenskra skipa í færeysku lögsögunni hverju sinni við kolmunnaveiðar verður áfram 12.
Botnfiskveiðiheimildir Færeyinga við Ísland verða óbreyttar á árinu 2010. Færeysk skip hafa því heimild til að veiða 5.600 lestir af botnfiski á árinu. Heildarafli þorsks verður þó aldrei meiri en 1.200 lestir og lúðuafli aldrei meiri en 40 lestir.
Íslensk skip hafa heimild til að veiða 2.000 lestir af Hjaltlandssíld við Færeyjar og 1.300 lestir af makríl.
Þannig er samningurinn nær óbreyttur milli ára.
Ákveðið var að fulltrúar landanna hittist á næstu misserum til að ræða sérstaklega eftirlit með veiðum í lögsögum Íslands og Færeyja, þar með talið skráningu á afla. Markmið með slíkum fundi er að fara yfir framkvæmd eftirlitsins, hvernig það megi bæta og tryggja enn betur samvinnu þeirra sem því sinna. Mun Ísland boða til fundarins.
Þá óskuðu Færeyingar eftir því að Ísland tæki til skoðunar að færeyskum skipum verði heimilt að stunda takmarkaðar rækjuveiðar innan lögsögu Íslands við landhelgismörkinn milli Íslands og Grænlands, eða á svonefndum Dohrnbanka. Jafnframt lýstu Færeyingar yfir áhuga á að fá að nýta heimild Íslands til veiða á rækju á Flæmingjagrunni (NAFO svæði 3L), komi til þess að íslensk skip nýti ekki heimildir sínar á þessu ári. Ísland mun taka beiðni Færeyinga í þessum efnum til skoðunar.
Auk þessa ræddu ráðherrarnir ýmis önnur sameiginleg hagsmunamál, m.a. samstarf innan alþjóðlegra stofnana sem og um nýtingu annarra sameiginlegra stofna á vettvangi svæðabundinna fiskveiðistjórnunarstofnana svo sem markíl og úthafskarfa.
Samningurinn verður formlega staðfestur með nótuskiptum milli utanríkisráðherra Íslands og Færeyja og í kjölfarið staðfestur af Alþingi.
Á meðfylgjandi mynd eru Jacob Vestergaard, sjávarútvegsráðherra Færeyja og Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherrra eftir að viðræðum var lokið.