Hoppa yfir valmynd
15. febrúar 2010 Dómsmálaráðuneytið

Skráning í íslenskupróf fyrir umsækjendur um ríkisborgararétt hefst 1. mars

Íslenskupróf vegna umsóknar um íslenskan ríkisborgararétt hefjast næst hjá Námsmatsstofnun 31. maí næstkomandi fyrir þá sem hafa skráð sig í próf fyrir 10. maí. Þeir sem skrá sig eftir þann tíma eiga kost á því að taka próf í desember 2010. Prófin verða haldin í Reykjavík og utan höfuðborgarsvæðisins ef næg þátttaka fæst. Skráning hefst 1. mars nk.

Hinn 1. janúar 2009 tók gildi það ákvæði í lögum um íslenskan ríkisborgararétt að umsækjandi skuli hafa staðist próf í íslensku. Dómsmála- og mannréttindaráðuneytið (þá dóms- og kirkjumálaráðuneytið) fól Námsmatsstofnun að sjá um framkvæmd prófanna sem haldin voru í tvígang á síðasta ári, í júní og desember. Alls þreyttu 476 próf árið 2009, flestir frá Filippseyjum, Póllandi og Taílandi.

Skráning fer fram með rafrænum hætti á vef Námsmatsstofnunar, www.namsmat.is. Þar er einnig að finna nánari upplýsingar um hvar prófin fara fram, sýnishorn af verkefnum og prófkröfur. Einnig eru veittar upplýsingar í síma 550 2400. Gjald fyrir þátttöku í prófi er 7.000 krónur.

Auglýsing um íslenskupróf (pdf-skjal)

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum