Staða forstjóra sameinaðs félags Flugstoða og Keflavíkurflugvallar auglýst
Auglýst hefur verið laus til umsóknar staða forstjóra hins nýstofnaða sameinaða félags Flugstoð og Keflavíkurflugvallar. Umsóknarfrestur er til 3. mars.
Í auglýsingunni kemur fram að forstjóri hafi með höndum yfirstjórn sameinaðs félags og daglega stjórn fyrirtækisins í umboði stjórnar og í samræmi við samþykkta stefnu. Fer forstjóri með yfirumsjón flugleiðsöguþjónustu, flugvallareksturs, tæknimála og stoðstarfsemi og ber ábyrgð á frekari viðskiptaþróun félagsins í samvinnu við framkvæmdastjóra sviða.
Gerð er krafa um háskólapróf í verkfræði, viðskiptum eða lögfræði eða sambærilegum greinum sem nýtast í starfi. Framhaldsmenntun í viðkomandi greinum er talin æskileg. Gert er krafa um víðtæka reynslu af stjórnun verkefna og starfsmanna. Einnig segir í auglýsingunni að leitað sé eftir kraftmiklum stjórnanda með víðtæka stjórnunareynslu og framúrskarandi samskiptahæfileika. Hann þurfi að hafa mikinn framkvæmdavilja og metnað fyrir hönd fyrirtækisins.
Umsóknir sendist Þóri Þorvarðarsyni hjá Hagvangi [email protected] sem einnig veitir nánari upplýsingar í síma 520 4700 eða netfanginu.