Opin málstofa um makríl - veiða og vinnslu
Auglýsing
Opin málstofa um makríl – veiðar og vinnslu
Opin málstofa á vegum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins um veiðar og vinnslu á makríl verður haldin í Þingsal 5, “bíósal” Hótel Loftleiða miðvikudaginn 24. febrúar kl. 14:00 – 17:00.
Á dagskrá verður:
Setning málstofu: Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jón Bjarnason.
Skýrsla vinnuhóps um makrílveiðar: Steinar Ingi Matthíasson, skrifstofustjóri ráðuneytisins.
Makrílveiðar Norðmanna: Sérstakur gestur málstofunnar Otto James-Olsen, fagstjóri uppsjávarveiða Samtaka fiskvinnslustöðva í Noregi.
Breytingar á umhverfi og líffræði makrílsins: Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri nytjastofnasviðs / Sveinn Sveinbjörnsson, fiskifræðingur hjá Hafrannsóknastofnun.
Makrílveiðar, vinnsla og sala: Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar hf í Neskaupsstað.
Upphaf makrílveiða og framtíðarhorfur: Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Hugins ehf í Vestmannaeyjum.
Makrílveiðar smábáta með handfærum: Unnsteinn Þráinsson, smábátasjómaður.
Vinnsla til aukinna verðmæta: Sigurjón Arason, verkefnastjóri MATÍS - matvælarannsóknir Íslands.
Málstofustjóri: Helga Sigurrós Valgeirsdóttir, forstöðumaður upplýsingasviðs Fiskistofu.
Stuttar fyrirspurnir og umræður verða leyfðar í málstofulok.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku með tölvupósti [email protected] í síðasta lagi á hádegi þriðjudaginn 23. febrúar 2010.
Verið velkomin.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið.